Jón Gnarr hóf vísnahorn á Twitter sem sló í gegn.
Jón Gnarr þekkja flest ef ekki hvert einasta mannsbarn á landinu. Þekktastur er hann fyrir gamanleik og borgarstjórnartíð sína. Þá er hann einnig vel þekktur útvarpsmaður en hann hefur verið annar höfuðið í Tvíhöfða til margra ára. En Gnarr er ekki þekktur fyrir skáldagáfur, að minnsta kosti ekki enn. Nýlega birti Jón færslu á Twitter þar sem hann sagði vísnahorn vanta á miðilinn. Ríður hann svo á vaðið og er óhætt að segja að um sé að ræða tært listlíki (e. kitsch):
„ég hef lengi saknað þess að við skulum ekki vera með neitt vísnahorn hér á tístinu þannig að ég ákvað að ríða á vaðið:
jarðskálftarnir margir nú
yfir landið ganga
túristarnir og ég og þú
útí Bónus hanga“
Helgi Seljan rannsóknarblaðamaður, fagnaði þessu vísnahorni með einföldu „Loksins!“
Kallinu svöruðu margir með mislélegum vísum, þar á meðal einn af Fóstbræðrum Jóns, Helga Braga Jónsdóttir:
„Nú er ég að far’í sund
aþþí það er gaman
Kannski hitti ég hann Guðmund
og við syndum í kafi saman“
Hilmar Jónsson kom með ansi hreint góða vísu sem hann kýs að kalla Kúkað í fyrsta skipti hjá kæró:
„Hrífuskaftaspýtingur
skvettir vatni’á rassinn.
Afturendinn lofsyngur
en tómur klósettkassinn.“
Jón Gnarr birti svo aðra vísu:
„í sundi alltaf gaman er
að synda bringusund
allir glaðir að skemmta sér
í heitum potti eiga góða stund!“
Hægt er að sjá fleiri listlíki hér fyrir neðan:
ég hef lengi saknað þess að við skulum ekki vera með neitt vísnahorn hér á tístinu þannig að ég ákvað að ríða á vaðið:
jarðskálftarnir margir nú
yfir landið ganga
túristarnir og ég og þú
útí Bónus hanga#Vísnahornið #Vísnatíst— Jon Gnarr (@Jon_Gnarr) August 2, 2022