Þriðjudagur 23. apríl, 2024
10.1 C
Reykjavik

Jón var ásamt hnífahernum á Bankastræti Club – Fjölskyldumeðlimir hafa flúið land vegna árása

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Dyravörðurinn Jón Pétur Vágseið er einn þeirra sem fór ásamt  fylkingu 27 hettuklæddra hnífamanna inn á skemmtistaðinn Bankastræti Club aðfararnótt föstudagsins síðastliðinn. Þrír menn slösuðust alvarlega í hnífaárásinni eftir að hafa verið margstungnir. Engar heimildir eru fyrir því að Jón hafi beitt vopni í átökunum. Hann var samkvæmt heimildum Mannlífs, ekki inni í því herbergi þar sem árásirnar áttu sér stað.

Sjá einnig: Þessir þrír voru stungnir á Bankastræti Club – „Þetta eru bara skíthælar“

Líkt og Mannlíf greindi frá réðist 27 manna hnífaher, sem huldi höfuð sín, á þrjá menn um tvítugt á Bankastræti Club. Þremenningarnir særðust alvarlega í hnífaárásinni en eru ekki taldir í lífshættu. Hótanir höfðu gengi á milli mannanna á samfélagsmiðlum fyrir árásina.

Eftir því sem Mannlíf kemst næst er Jón Pétur um þrítugt og rekur fyrirtæki sem býður dyravörslu á skemmtistöðum, á viðburðum og hátíðum se, og í einkasamkvæmum. Hann er nokkuð eldri en flestir hnífamannanna sem með honum voru í för þetta kvöld. Engar heimildir eru þó fyrir því að Jón hafi beitt vopni þetta kvöld.

21 hefur verið handtekinn í tengslum við málið, tólf sitja í gæsluvarðhaldi en lögregla á enn eftir að taka ákvörðum um hvort farið verði fram á gæsluvarðhald yfir þremur. Hinum hefur verið sleppt úr haldi og fimm til sex manna er enn leitað vegna árásarinnar. Þá hafa fjöl­skyldu­með­limir hinna grunuðu árásarmannanna sætt stöðugum hótunum og á­rásum síðan og ein­hverjir hafa flúið út á land vegna á­standsins.

Sjá einnig: Margstunginn á Bankastræti Club og sendir kveðju frá sjúkrabeði: „Nokkrar stungur, ekkert stress!“

- Auglýsing -

„Þegar ég stend upp þá sé ég bara að það er einhver bútur út úr bakinu mínu – bara hangandi út og þá fattaði ég að ég hefði verið stunginn,“ segir Lúkas Geir, einn þeirra þriggja gesta sem stungnir voru á skemmtistaðnum Bankastræti Club fyrir helgi.

Lúkas og félagi hans, John Sebastian eru enn á sjúkrahúsi vegna áverka sem þeir hluti í árásinni. Vinur þeirra, ungur drengur sem kallar sig Luffro, var líka stunginn. Þrátt fyrir að 27 árásarmenn hafi ráðist að honum með hnífum virðist hann hvergi banginn í kveðju sem hann sendir frá sjúkrabeðinu og birti á samfélagsmiðlum:

„27 að ráðast á 3 og við erum enn labbandi. Nokkrar stungur, ekkert stress.“

„Svo bara kemur hópur af grímuklæddum mönnum bara rushar á okkur. Við héldum að þetta væru svona fimmtán þangað til lögreglan bara sagði við okkur: Svo kemur í ljós að þeir voru 27. Ég held þeir séu bara jealous því við erum með mikla athygli á okkur,“ segir Lúkas og bætir við:

- Auglýsing -

Sjá einnig: Birgitta Líf opnar sig um hnífaárásina í nótt: „Þökkum Guði að ekki fór verr“

„Ég get sagt þér það að þessir drengir eru búnir að vera með stríð við okkur í svolítið góðan tíma. Því þeir vilja vera mennirnir. Þeir þurfa að vera 27 saman til að ná okkur þremur. Þetta eru bara skíthælar. Við vorum bara á latino-kvöldi.“

Hinir særðu eru góðvinir Gabríel Douane Boama, sem strauk úr Héraðsdómi Reykjavíkur fyrr á árinu. Afplánar Gabríel nú dóminn í fangelsinu á Hólmsheiði en var hann fyrr á árinu dæmdur í átján mánaða fangelsi. Dómurinn var vegna endurtekna líkamsárása, þjófnaðar, fíkniefnalagabrots og brot gegn valdstjórninni.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -