Fimmtudagur 18. apríl, 2024
2.1 C
Reykjavik

Jón Múli Árnason – Aldarminning: Röddin eina, sambandið við Sovétríkin og Djassinn

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Líklega eru fá nöfn jafn samtvinnuð Ríkisútvarpinu og nafn Jóns Múla Árnasonar þular.

Rödd Jóns Múla var einstök; var hann um áratugaskeið ein þekktasta, ef ekki sú þekktasta, rödd íslensku þjóðarinnar; en hann starfaði hjá stofnuninni í nær fjóra áratugi; þar sá hann einnig um rómaða djassþætti og kynnti þjóðinni strauma og stefnur tónlistarinnar sem hann elskaði. Í þessu ljósi var Jón oft nefndur sveiflumeistari Ríkisútvarpsins eða áróðursmeistari sveiflunnar. Lög Jóns Múla, oft við texta Jónasar, bróður hans, hafa tekið sér trygga bólfestu í íslensku þjóðarsálinni og má þar nefna lög eins og; Fröken Reykjavík, Einu sinni á ágústkvöldi, Gettu hver hún er? Augun þín blá o.fl.

Jón Múli átti aldarafmæli á síðasta ári en hann fæddist á Kirkjubóli í Vopnafirði, 31. mars 1921.

Virkur sósíalisti sem hlaut fangelsisdóm

Jón Múli var virkur félagi í Sósíalistaflokknum og síðar Alþýðubandalaginu. Hann hlaut fangelsisdóm fyrir þátttöku sína í óeirðum á Austurvelli og árás á Alþingishúsið 30. mars 1949, en var náðaður. Hann var um skeið launaður starfsmaður MÍR, Menningartengsla Íslands og Ráðstjórnarríkjanna, eins og hann segir frá í sjálfsævisögu sinni.

Hann fór í boðsferðir til Sovétríkjanna og hélt oft uppi vörnum fyrir þau opinberlega. Meðal annars hélt hann því fram 1980 að Sovétmenn hefðu ekki ráðist inn í Afganistan, heldur veitt umbeðna aðstoð „sem betur fer“. Hann sagði 1981 að „fasískur ruslaralýður“ kæmi fram í nafni Samstöðu í Póllandi og fagnaði setningu herlaga.

- Auglýsing -

Sagði hann: „Ég vona, að ráðstafanirnar komi ekki of seint til þess að bæta fyrir skemmdarverk fyrrnefnds hyskis og Pólverjar fái að byggja æ fegurra þjóðlíf undir forystu kommúnistaflokks Póllands. Hann lengi lifi.“ Jón Múli var fulltrúi Alþýðubandalagsins í útvarpsráði 1978–1982.

The US army is not a jazzband“

Jón Múli var þekktastur fyrir útvarpsstörf sín en hann hóf að starfa í Ríkisútvarpinu 1946 og gegndi í gegnum tíðina ýmsum störfum þar. Hann var þulur, fréttamaður, fulltrúi í tónlistar- og leiklistardeild, fréttaritari RÚV á ólympíuleikum og annaðist djassþáttagerð á árunum 1945–95. Jón var þekktur fyrir áhuga sinn og dálæti á djasstónlist.

- Auglýsing -

Sagan segir að Jón Múli hafi byrjað útvarpsferil sinn á því þegar hann kom inn í útvarpsþátt Einars Pálssonar og gagnrýndi hann fyrir að kunna ekki skil á helstu sólóum Dukes Ellingtons. Einar á að hafa svarað honum: „fyrst að þú ert svona klár, af hverju kemur þú bara ekki í þáttinn?“ Jón lét ekki segja sér það tvisvar og hóf skömmu síðar að annast djassþátt á ríkisútvarpinu, en hann mun hafa hlustað á djass allt frá 1934.

Vernharður Linnet djassfræðingur sagði frá því í blaðagrein að Jón Múli væri djassfróður maður þegar þeir félagar voru staddir á norrænni djassfræðingaráðstefnu í Noregi 1987. Jón Múli flutti þar erindi um fyrstu erlendu djasstónlistarmennina sem spiluðu á stríðsárunum á Íslandi. Eitthvað þótti mönnum undarlegt að Íslendingar stæðu ekki fremstir Norðurlandabúa í djasstónlistinni vegna hernáms Breta og veru Bandaríkjamanna á meðan Danir og Norðmenn voru undir hæl Þjóðverja. Jón Múli svaraði því til með einföldum hætti: „The US army is not a jazzband.“

Ekki sáttir við áhuga hans á „stórhættulegri“ tónlist

Jón Múli naut mikillar virðingar fyrir þá vakningu sem hann kveikti með djassþáttum sínum og þegar yngri djassspilarar gáfu út plötur áttu þeir til að tileinka honum plötuna eða fá hann til að rita nokkur orð á plötuumslög.

Jón Múli var einn af stofnendum Jazzklúbbs Reykjavíkur sem starfaði á árunum 1949–53 en sá klúbbur gaf m.a. út tímarit um djass. Ekki voru allir á eitt ánægðir með þessa framandi tónlist og sagan segir að kona ein hafi hellt úr fötu fullri af vatni yfir Jón Múla á förnum vegi, auk þess sem hann hafi verið kallaður ýmsum ljótum nöfnum vegna áhuga hans á þessari „stórhættulegu“ tónlist. Þess má geta að djassklúbburinn Múlinn var stofnaður Jóni Múla til heiðurs.

Árið 1985 ritaði Jón Múli bókina Djass sem var eins konar saga djassins. Í henni er m.a. að finna stuttan kafla um djass á Íslandi. Ritstörf hans náðu reyndar lengra en hann skrifaði bækurnar; Þjóðsögur Jóns Múla Árnasonar I-III og Söngdansar I-II. Honum var margt til lista lagt, ásamt því að vera þulur og djassari fékkst hann við kennslu. Hann kenndi djasssögu við Tónlistarskóla Félags íslenskra hljómlistarmanna um tíma.

Þrátt fyrir að vera þekktastur fyrir þularhlutverk sitt kom Jón Múli (f. 1921) þó með margs konar hætti að tónlist. Hann nam hljómfræði og trompetleik við Tónlistarskólann í Reykjavík frá árunum 1945-46 og lærði söng hjá Pétri Á. Jónssyni óperusöngvara á árunum 1951 og 1952. Jón Múli var einn af stofnendum Lúðrasveitar verkalýðsins árið 1953 og lék á kornett með sveitinni í tæplega tuttugu ár. Lúðrasveit verkalýðsins gerði hann að heiðursfélaga sveitarinnar árið 1991.

Jón Múli kom mikið að tónlist í gegnum ævina eins og fyrr kemur fram. Hann var tónskáld og vann að mestu leyti með Jónasi, bróður sínum. Þeir sömdu söngleikina Delerium Bubonis og Járnhausinn en einnig samdi hann tónlistina við söngleikina Rjúkandi ráð og Allra meina bót, sem var gefin út á samnefndum plötum. Jón samdi tónlist í einhverjum mæli án þess að söngleikir kæmu þar við sögu en lög sín kallaði hann söngdansa.

Haukur Morthens flutti lögin hans

Lög hans hafa verið gefin út á plötum með ýmsum flytjendum s.s. Hauki Morthens, Fjórtán fóstbræðrum, Hornaflokki Kópavogs, Lúðrasveit verkalýðsins og sönghópnum Rjúkandi, svo dæmi séu tekin, en einnig hafa ýmsir tónlistarmenn flutt lög hans á plötum honum til heiðurs eins og Lög Jóns Múla Árnasonar (1981), Lög Jón Múla Árnasonar við texta Jónasar Árnasonar (1987), Melónur og vínber fín (1998), Söngdansar Jóns Múla Árnasonar með Óskari Guðjónssyni og Delerað (2000), Keldulandið með Óskari Guðjónssyni og Eyþóri Gunnarssyni (2001) og Á Ljúflingshól (2009) þar sem Sigríður Thorlacius og Heiðurspiltar syngja og leika lög hans. Enn fremur kom út 2011 þriggja platna safn, Söngdansar og ópusar. Einstök lög eftir Jón Múla hafa að auki komið út á tugum platna tónlistarmanna hérlendis.

Jón Múli annaðist útvarpskynningar á tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands allt frá stofnun hennar frá árinu 1950 til ársins 1990. Hann var fulltrúi í útvarpsráði um tíma og Nordjazz.

Það má því segja að starfsævi hans hafi að mestu legið innan dyra Ríkisútvarpsins. Rætur hans til útvarpsins lágu enn dýpra því hann var kvæntur Ragnheiði Ástu Pétursdóttur og var um leið tengdasonur Péturs Péturssonar, en þau voru bæði þulir hjá útvarpinu. Til fróðleiks má geta þess að Jón Múli er fósturfaðir Eyþórs Gunnarssonar tónlistarmanns og þess vegna tengdafaðir Ellenar Kristjánsdóttur söngkonu, en Eyþór er sonur Ragnheiðar Ástu.

Stórsveit Reykjavíkur fagnaði aldarafmæli Jóns Múla Árnasonar í Hörpu 21. mars 2021.  Flutt voru öll þekktustu lög Jóns Múla í glænýjum útsetningum.  Gestasöngvarar voru Ellen Kristjánsdóttir, Jón Jónsson, Sigríður Thorlacius og Sigurður Guðmundsson.

Jón Múli átti við veikindi að stríða um tíma áður en hann lést 2002.

 

Heimildir:

„Hvað segir þú um innrás og hernám Sovétríkjanna í Afganistan?“ Morgunblaðið 10. janúar 1980; „Hef undrazt langlundargerð pólskra kommúnista,“ DV 15. desember 1981.

Landsbókasafn Íslands. 2021. Jón Múli Árnason – Sýning af tilefni aldarminningu 31. mars 2021. Reykjavík.

Úr Þjóðsögum Jóns Múla Árnasonar; birtist í Morgunblaðinu 1998. Slóð.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -