Fimmtudagur 25. apríl, 2024
6.1 C
Reykjavik

Kári við Guðna: „Það er ekki sjúkdómur auminginn þinn! Þú getur læknað þig sjálfur“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

„Við erum allt of gjörn á að kenna stjórnvöldum eða öðrum um það sem gengur illa hjá okkur. Við verðum að læra að taka ábyrgð á okkur sjálfum og hætta að kenna öðrum um í tíma og ótíma. Við þurfum að koma saman, vera dugleg að vera innan um fólk, hreyfa okkur og njóta lífsins. Hamingjan er undir okkur sjálfum komin. Auðvitað er fólk sem á mjög erfitt og þeim þarf að hjálpa, en það eiga ekki allir erfitt.”

Guðni Ágústsson, fyrrverandi ráðherra og þingmaður er nýjasti gesturinn í podcasti Sölva Tryggvasonar. Guðni er á því að stjórnmálin hafi breyst í gegnum tíðina og að þó að fólk hafi oft verið ósátt við gjörðir þingmanna og haft ólíkar skoðanir hafi virðingin verið meiri áður en hún er nú.

Það á að banna símana í þingsal

„Það að starfa á Alþingi var einn stærsti heiður sem hægt var að upplifa. Jómfrúarræðan er stund sem maður gleymir aldrei, en í dag finnst mér nánast að þetta sé orðið eins og hvert annað djobb. Auðvitað er mikill munur á milli þingmanna, en sumir nenna ekki að vera vel til hafðir og virðast ekki hafa áhuga á að viðhalda virðingu þingsins. Lítið dæmi er að þingmenn sitja núna í þingsal og eru oft bara í símanum. Það er leiðinlegt að sjá þingmennina og ráðherrana grúfa sig ofan í símann í sölum Alþingis. Gemsana á að banna í þingsal. Þetta er eitt af því sem dregur úr virðingu þingsins,” segir Guðni sem er líka á því að þingmenn séu oft of uppteknir af almenningsáliti og í vinsældakeppni. Hann er ekki sáttur við þá þróun að krefjast afsagna þingmanna og ráðherra vegna allra mögulegra hluta:

„Það er náttúrulega mjög algengt og orðin algjör della hér á Norðurlöndunum hvernig ráðherrar og þingmenn segja af sér. Það má ekkert koma upp og jafnvel 30-40 ára gömul mál valda því að þeir eru að segja af sér. Fólk er orðið hrætt við að segja satt af ótta við að þessi verði krafist að það segi af sér, þannig að það er orðið mjög erfitt að velja sér þetta starf.”

Fallegasti miðbær heims er á Selfossi

Guðni, sem bjó um tíma á höfuðborgarsvæðinu er alsæll að vera aftur fluttur austur fyrir fjall:

„Nú bý ég á Selfossi í glæsilegasta miðbæ heimsins, þennan nýja miðbæ sem er orðinn algjört augnayndi. Gömul og sögufræg hús og ég bý í einu þeirra. Sagan drýpur af hverju strái á Selfossi og þarna er líka risið Mjólkurbú Flóamanna og ég kann hvergi betur við mig. Ég er enda alinn upp á Brúnastöðum, sem eru þarna rétt hjá og ég á mikið af frábærum minningum frá þessu svæði.”

- Auglýsing -

Guðni segir í þættinum frá því tímabili í lífi sínu þegar heilsunni var farið að hraka mikið og hann hlustaði ekki á síðustu skilaboð föður síns.

„Faðir minn hafði varað mig við, eftir að hafa sjálfur farið inn á Alþingi árið 1956 um fimmtugt. Hann var þá tágrannur, en menn fitna gjarnan í þessu starfi, enda óreglulegt líf. Hann var þéttur á velli og þegar hann var búinn að fá hjartaáfall og ég nýbúinn að vinna prófkjör fór ég til hans og margir voru að kveðja pabba. Hann var þá spurður hvernig honum litist á að ég væri að fara á þing. Hann svaraði þá: „Hann klórar sig fram úr því drengurinn. Ég hef engar áhyggjur af því, en ég hef áhyggjur af því að hann verði of feitur…. Margrét mín (eiginkona Guðna), sjáðu nú um að halda í við hann í mat og drykk.”

En ég hlýddi ekki þessu síðasta heilræði og var á endanum orðinn rúmlega 105 kíló. Þá fara meinin að koma og ég var við það að fá sykursýki. Þegar ég fékk þær fréttir fór ég til Kára Stefánssonar og sagði honum að ég væri líklega að fara að drepast og væri kominn með sykursýki. Kári svaraði strax: „Það er ekki sjúkdómur auminginn þinn! Þú getur læknað þig sjálfur. Þú ferð að borða hollan mat, minnkar við þig og ferð að ganga og æfa.” Ég hlýddi þessum heilræðum Kára og fór undir 90 kíló og hef haldið mig þar. Ef ég hefði ekki gert þetta væru líklega hné og mjaðmir búin að gefa sig og mögulega fleira líka,” segir Guðni og bætir við:

- Auglýsing -

„Það var erfiðast að losa sig við sykurinn. Á meðan ég var að venja líkamann af sykrinum og bjórþambi var eins og ég væri í afvötnun. Það var mikið átak og það var eins og líkaminn öskraði á meiri sykur. Fyrsti mánuðurinn var hvalræði.”

Guðni hefur síðan haldið sig við reglulega hreyfingu og hollara matarræði og er enn í kjörþingd að eigin sögn. Hann er ekki hrifinn af fórnarlambavæðingu samfélagsins:

Hægt er að nálgast þáttinn með Guðna og öll viðtöl og podcöst Sölva Tryggvasonar inni á solvitryggva.is

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -