Arna Magnea Danks
„Við erum bara fólk eins og annað fólk“
Arna Magnea Danks
Innlent

Eft­ir­lýstur í átta mán­uði á Íslandi en finnst ekki

Pólitík

Sakar Trygg­inga­stofnun um að veita rangar upp­lýs­ingar og sýna for­dóma

Pólitík

Glúmur segir Ólaf Ragnar „mesta vind­hana sem Ísland hefir fætt og klætt“

Fólk

Höllin við Sjafn­ar­götu hefur beðið eftir kaup­anda frá vor­inu 2023

Fólk

Laufey stal sen­unni á einni glæsi­leg­ustu tísku­há­tíð árs­ins

Pólitík

Reykja­vík­ur­borg þegir um upp­sagnir 50 starfs­manna

Innlent

Maður játar að hafa brotið rúður í nærri þrjá­tíu bílum á Sel­tjarn­ar­nesi

Innlent

Egill segir íslenska fjöl­miðla fasta í einni mestu fréttagúrku síð­ari ára

Pólitík

„Það var stór­kost­legt að vakna í morgun“

Innlent

Fíkni­efna­bóndi í Reykja­vík dæmdur í fang­elsi

Katrín 2016 tekur Katrínu 2022 til bæna: „Við viljum vera samfélag sem tekur á móti meðbræðrum “

Katrín 2016 tekur Katrínu 2022 til bæna: „Við viljum vera samfélag sem tekur á móti meðbræðrum “
Katrín Jak­obs­dóttir.

„65 millj­ónir manna eru á flótta. Helm­ingur þeirra er börn sem hafa ekk­ert til þess unnið að vera svipt fram­tíð sinni. Þetta gætu verið börnin okkar.“

Þetta sagði Katrín Jak­obs­dóttir, for­sæt­is­ráð­herra og for­maður VG, fyrir ekki svo löngu síðan eða á Eld­hús­dags­um­ræðum á Alþingi 2016. Í dag hlær hún mögu­lega að þessu bernsku­breki og veltir því fyrir sér hvernig hún gat trúað þessu. Í það minnsta mætti ætla það miðað við ákvarð­anir hennar í dag.

Myndband af ræð­unni má sjá hér fyrir neðan en því hefur verið deilt á sam­fél­ga­smiðlum og sett í sam­hengi við brott­vísun flótta­manna í nótt. Sú aðgerð hefur verið harð­lega for­dæmd frá mörgum hliðum í dag.

Það má telj­ast næstum öruggt að Katrín árið 2016 hefði for­dæmt aðgerðir sínar í dag, sex árum síðar. Katrín sagði að á Íslandi væri vel hægt að byggja betra sam­félga sem tæki vel á móti flótta­mönnum og einnig hlúði vel að þeim sem fyrir væru.

„Ég held að við viljum vera sam­fé­lag sem tekur á móti með­bræðrum og -systrum okkar sem flýja hörmu­leg stríð. Það er nefni­lega hægt að hjálpa, það er hægt að hjálpa okkar fólki án þess að loka dyr­unum fyrir öðrum.

Það er hægt að velja stjórn­mála­öfl sem eru til­búin í það verk­efni,“ sagði Katrín og vafa­laust héldu flestir að hún væri að tala um eigin flokk. Mögulega var hún með annan flokk í huga, því hún nefnir engan flokk á nafn.

Svo tal­aði Katrín um að kær­leikur ætti að vera kjarni okkar sam­fé­lags. „Þetta er flótta­fólkið sem við erum að tala um, fólkið sem flýr sprengjur og óhugnað sem við getum sem betur fer fæst ímyndað okkur, fólkið sem ein­hverjir eru svo hræddir við að þeir tala um að loka landa­mærum og afnema mannúð og kær­leika sem okkur finnst mörgum að eigi að vera kjarni okkar sam­fé­lags, kjarni þess sem við erum,“ sagði Katrín þá. En menn mega nú skipta um skoðun.

Ræðan er nokkuð löng en flótta­menn hafa greini­lega verið henni ofar­lega í huga árið 2016. Oftar en einu sinni for­dæmir hún þáver­andi stefnu, sem er í raun núver­andi stefna einnig. Mál þeirra virð­ast eitt mik­il­væg­asta mál flokks­ins og því við­snún­ingur flokks­ins stór­und­ar­legur. Eins og ef Framsókn færi að hata bændur.

Til marks um þetta þá byrjar Katrín ræð­una svo:

„Kæru lands­menn. Ég held að við viljum ekki vera sam­fé­lag þar sem nokkur þús­und börn líða ein­hvers konar skort í landi sem telst hið ell­efta rík­asta í heim­inum. Og, já, ég held að við viljum vera sam­fé­lag sem tekur á móti með­bræðrum og -systrum okkar sem flýja hörmu­leg stríð. Það er nefni­lega hægt að hjálpa, það er hægt að hjálpa okkar fólki án þess að loka dyr­unum fyrir öðrum.“

En lokorð ræð­unnar hljóma helst eins og bölvun í dag: „Það held ég að sé góð fram­tíð. Við eigum ekki að láta segja okkur að sú fram­tíð sé óraun­hæf. Við getum einmitt látið hana verða ef við gerum það saman. — Góðar stundir.“

Svo reynd­ist ekki.

Ræðan hefst á mín­útu 28 og hætti mynd­bandið að byrja þar:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...

Mest lesið í vikunni

Fólk

Spólglaður öku­maður fékk mak­leg mála­gjöld

Lögregla sinnti umferðarlagabrotum, þjófnaði úr verslun og ónæði í verslunarmiðstöð í gærkvöldi og nótt.
Innlent

Allir Bónus vanillu­dropar inn­kall­aðir

Heimur

Er Sabrina Pasterski næsti Einstein?

Innlent

Erfða­rann­sóknir á Íslend­ingum lyk­il­at­riði í þróun nýs megr­un­ar­lyfs

Innlent

Eyjan sem átti að hverfa árið 2020 stendur enn upp úr sjó

Innlent

Innlent

Umboðs­maður Alþingis krefur Útlend­inga­stofnun svara

Fjölmargar kvartanir vegna tafa á afgreiðslu umsókna hafa borist umboðsmanni, sem vill skýringar á biðtíma.
Innlent

MAST varar við neyslu á skinku frá Stjörnu­grís

Innlent

Lög­reglan gerði mis­tök en íslenska ríkið sleppur við bætur

Innlent

Nú er hægt að spjalla við lög­regl­una á net­inu

Innlent

Drífa segir frjálst val í vændi oft vera blekk­ingu

Innlent

Þrír hand­teknir vegna ráns í Graf­ar­vogi