Arna Magnea Danks
„Við erum bara fólk eins og annað fólk“
Arna Magnea Danks
Fólk

Björk Guð­munds­dóttir er ólétt

Peningar

Samherji hyggst reka vinnu­búðir með gist­ingu

Fólk

Selja fal­lega sveita­sælu í Ölfusinu með risa­stórri lóð

Minning

Svanur Jóhann­es­son er lát­inn

Innlent

Eft­ir­lýstur í átta mán­uði á Íslandi en finnst ekki

Innlent

Kona á fimm­tugs­aldri ákærð fyrir að aug­lýsa vændi á Akureyri

Innlent

MAST varar við neyslu á skinku frá Stjörnu­grís

Pólitík

Sakar Trygg­inga­stofnun um að veita rangar upp­lýs­ingar og sýna for­dóma

Heimur

Óvenju­leg inn­rás mar­íu­bjalla vekur óhug

Pólitík

Glúmur segir Ólaf Ragnar „mesta vind­hana sem Ísland hefir fætt og klætt“

Katrín og Bjarni ósammála um viðskipti stórútgerða

Katrín og Bjarni ósammála um viðskipti stórútgerða

Katrín Jak­obs­dóttir, for­sæt­is­ráð­herra, seg­ist hafa áhyggjur af því að sam­þjöppun í sjáv­ar­út­vegi verði of mikil eftir kaup Síld­ar­vinnsl­unnar á útgerð­inni Vísi í Grinda­vík. Þetta kemur fram á RÚV.

Katrín segir meðal ann­ars að Sam­keppn­is­eft­ir­litið og Fiski­stofa séu með það til skoð­unar hvort afla­heim­ildir fari yfir kvóta­þakið eftir kaupin. Hún seg­ist hafa þá skoðun að end­ur­skoða verði reglu­verkið, bæði varð­andi kvóta­þak og tengda eig­endur.

„Það er búið að vera tölu­verð umræða um það á und­an­förnum miss­erum að það þurfi að skerpa mjög á þeim reglum,“ segir Katrín í sam­tali við RÚV.

Hún seg­ist einnig hafa áhyggjur af áhrifum á byggð­ar­lögin í land­inu. „Við erum auð­vitað með sögu þar sem við höfum oft séð að hag­ræð­ing hefur ráðið för en ekki sjón­ar­mið um sam­fé­lags­lega ábyrgð eða byggða­festu. Þannig að ég hef líka áhyggjur af því.“

Katrín kveðst einnig hafa áhyggjur af til­flutn­ingi auðs sem eigi sér stað í kringum við­skipti á þessu tagi. Það megi setja í sam­hengi við laga­á­kvæði þar sem segir að auð­lindin sé sam­eign þjóð­ar­innar.

„Þá aftur vakna spurn­ingar um gjald­töku, þegar svona við­skipti eiga sér stað,“ segir hún og bætir við að um sé að ræða eitt þeirra atriða sem til skoð­unar séu hjá mat­væla­ráð­herra, Svandísi Svav­ars­dóttur.

Segir marga ala á sundrungu

Frétta­blaðið ræddi við Bjarna Bene­dikts­son, fjár­mála­ráð­herra, að loknum rík­is­stjórn­ar­fundi í morgun. Hann sagði enga ástæðu til ann­ars en að ætla að áfram yrði vel rekin og umfangs­mikil fram­leiðsla í Grinda­vík. Hann sér ekki ástæðu til þess að hafa áhyggjur af kaupum og sölu Vísis.

Bjarni sagði marga ala á sundr­ungu vegna fisk­veiði­kerf­is­ins, þegar blaða­maður Frétta­blaðs­ins spurði hann hvort við­skiptin kæmu til með að auka sundr­ungu um kerfið, sem hafi verið umdeilt fyrir.

Mál Guð­bjarg­ar­innar og Hrannar hf. á Ísafirði hefur verið rifjað upp í tengslum við kaup Síld­ar­vinnsl­unnar á Vísi, en félög í eigu Samherja eiga stóran hlut í Síld­ar­vinnsl­unni. Þegar útgerðin á Ísafirði var keypt voru svipuð lof­orð á lofti líkt og nú eru í Grinda­vík, um að starf­semin yrði áfram í heima­byggð. Það gekk hins vegar ekki eftir og Ísfirð­ingar sátu eftir með sárt ennið.

Lesa má um það mál í bak­sýn­is­spegli hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Er Sabrina Pasterski næsti Einstein?

Eftir að hafa smíðað flugvél á unglingsárum rannsakar Sabrina Pasterski nú svarthol, þyngdarafl og eðli rúmtímans.
Innlent

Maður játar að hafa brotið rúður í nærri þrjá­tíu bílum á Sel­tjarn­ar­nesi

Innlent

Erfða­rann­sóknir á Íslend­ingum lyk­il­at­riði í þróun nýs megr­un­ar­lyfs

Innlent

Eyjan sem átti að hverfa árið 2020 stendur enn upp úr sjó

Pólitík

„Það var stór­kost­legt að vakna í morgun“

Innlent

Innlent

Umboðs­maður Alþingis krefur Útlend­inga­stofnun svara

Fjölmargar kvartanir vegna tafa á afgreiðslu umsókna hafa borist umboðsmanni, sem vill skýringar á biðtíma.
Innlent

Drífa segir frjálst val í vændi oft vera blekk­ingu

Innlent

Lög­reglan gerði mis­tök en íslenska ríkið sleppur við bætur

Innlent

Nú er hægt að spjalla við lög­regl­una á net­inu

Innlent

Egill segir íslenska fjöl­miðla fasta í einni mestu fréttagúrku síð­ari ára

Innlent

Fíkni­efna­bóndi í Reykja­vík dæmdur í fang­elsi