Fimmtudagur 18. apríl, 2024
4.1 C
Reykjavik

KIA gullhringurinn fór fram í gær – Met slegin í frábærri keppni

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Nýir sigurvegarar voru krýndir í KIA Gullhringnum í gær á Laugarvatni og brautarmetið féll í karlaflokki. Sam Gateman frá Hollandi, keppnisliði Sensa, sigraði á tímanum 02:28:51 sem er 10 mínútum betri tími en fyrra brautarmet. Elín Björg Björnsdóttir, keppnisliði Airport Direct, sigraði í kvennaflokki á tímanum 02:53:35. Það var Birkir Snær Ingvason sem átti fyrra brautarmet, en hann setti það í fyrra.

Sigurvegarar í karlaflokki

Þá vakti sérstaka athygli að norskur afrekshjólreiðamaður Ole Bjorn Smisethjell, sem var á ferðalagi um Ísland þessa vikuna ákvað að skella sér í Silfurhringinn á fjallahjóli og gerði sér lítið fyrir og sigraði flokkinn hjá körlum. Ekki er hægt að miða tímana þar við fyrri ár þar sem keppt var í annarri braut en síðustu átta ár. Margrét Pálsdóttir, keppnisliði Hálfsystra, sigraði kvennaflokkinn.

Sigurvegarar í kvennaflokki

Þá voru það Guðmundur Arason Öfjörð og Þóra Katrín Gunnarsdóttir sem sigruðu Brons hringinn í ár og þá var í fyrsta sinn keppt í flokki rafmagnshjóla, en sigurvegarar þar voru Freyr Hákonarson og Helga Guðrún Elvarsdóttir og ljóst að sá hópur mun fara vaxandi komandi ár.

Mótið var vel heppnað í alla staði að mati skipuleggjenda en keppnin hefur verið haldin síðan 2012. Það viðraði vel á keppendur, milt veður og lítill ef nokkur vindur. Mikið var um vegaframkvæmdir á svæðinu og einhverjar þeirra ekki komnar eins langt og gert var ráð fyrir í vetur þegar dagsetning keppninnar var ákveðin. Breyta þurfti leiðinni í Silfur hringnum þetta árið með sólarhrings fyrirvara í samráði við þjóðgarðsvörð Þingvalla, Vegagerðina, lögreglu og viðbragðsaðila og er þeim öllum þakkað fyrir frábært samstarf við keppnina.

„Við viljum þakka vegfarendum í uppsveitunum fyrir sýndan velvilja og þolinmæði. Laugvetningum og rekstaraðilum hér fyrir frábærar móttökur enn eitt árið og öllum sjálfboðaliðunum sem gera þetta að veruleika með okkur,“ segir Þórir Erlings mótstjóri.

„Keppendur hjóluðu brautina af yfirveguðu öryggi en um leið af fullum krafti og það var tekið eftir því af dómurum og brautargæslufólki hversu mikinn keppnisþroska keppendur sýndu. Það er auðvitað mikill þáttur í öryggi keppenda, rýmið og tillitsemi sem þeir sýna hver öðrum.”

- Auglýsing -
Stuttu fyrir start

Keppnisbragurinn og veðrið gerðu þetta að einstökum degi á Laugarvatni. „Við áttum svo innilega fallegan dag hér í gær og það voru ekki bara sigurvegararnir sem áttu frábæran dag heldur líka allir þeir sem unnu sína persónulegu sigra. Ungir og aldnir keppendur af öllum styrkleikaflokkum hjóluðu hérna skælbrosandi í mark og nutu dagsins alveg í botn. Svo bussluðu allir í Fontana og við grilluðum ofan í alla og við áttum bara alveg frábæran dag og kvöld hérna,“ segir Þórir, en mótið er orðið einskonar fjölskylduskemmtun í hugum hjólreiðafólks.

Það er Askja, KIA á Íslandi sem er aðalkostandi keppninnar en það samstarf gerir keppnina mögulega á hverju ári. „Það er ómetanlegt að hafa svona samstarfsaðila með sér í svona verkefni og við erum þeim einlæglega þakklát.“

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -