Á vef Strætó kemur fram að greiðslukerfi Strætó liggi niðri. Þrátt fyrir bilunina fá farþegar greiðan aðgang í vagnana.
Þar segir: „Í nótt var gerð uppfærsla í Klapp greiðslukerfinu sem varð til þess að tenging rofnaði. Það er í algörum forgangi að koma þessu í lag.
Vagnstjórar eru meðvitaðir um ástandið og bjóða viðskiptavini velkomna á meðan unnið er að lagfæringu.“
Fátt um klapp fyrir Klapp
Er þetta ekki í fyrsta skipti sem nýja greiðslukerfið virðist bregast, heldur hefur fengið á sig töluverða gagnrýni neytenda. Einkum vegna tíðra bilana og hversu seinvirkt það hefur reynst.