Miðvikudagur 24. apríl, 2024
8.1 C
Reykjavik

Knattspyrnufélag Gylfa Sig sparar sér um 50 milljónir á viku með því að losa sig við hann og fleiri

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Everton þarf að skera niður hjá sér en félagið hefur verið illa rekið undanfarin ár og þarf að taka til í rekstri sínum til að standast reglur FIFA um fjárhag knattspyrnufélaga. Gylfi Þór Sigurðsson er á förum frá Everton nú þegar samningur hans er á enda í lok júní. Gylfi hefur hvorki æft né spilað með Everton í tæpt ár, segir í frétt The Athletic.

Gylfi hefur verið í herbúðum Everton í fimm ár en hann er dýrasti leikmaður í sögu félagsins. Everton borgaði 45 milljónir punda fyrir Gylfa þegar hann kom frá Swansea sumarið 2017.

The Athletic fjallar um málið og segir að Gylfi, Jonjo Kenny, Cenk Tosun og Fabian Delph fari að öllum líkindum frítt frá félaginu í sumar. Segir Athletic að þessir fjórir leikmenn þéni 300 þúsund pund á viku hjá félaginu. Everton sparar sér því 50 milljónir á viku með því að láta þessa fjóra leikmenn fara.

Gylfi hefur ekkert leikið eða æft með Everton eftir að lögregla hóf rannsókn í júlí á síðasta ári, er Gylfi sakaður um að hafa brotið kynferðislega gegn ólögráða einstaklingi. Gylfi hefur verið í farbanni frá Bretlandi síðan þá.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -