Miðvikudagur 24. apríl, 2024
9.1 C
Reykjavik

Komu fyrir ísskápi eða frískápi í miðbæ Reykjavíkur: „Matarsóun gríðarlegt vandamál hér á landi“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Tveir vinir ákváðu að koma fyrir ísskápi í miðbæ Reykjavíkur til þess að sporna gegn matarsóun. Stórt samfélag hefur skapast í kringum ísskápinn sem einkennist af nágungakærleika, segir í frétt Stöðvar 2 í kvöld.

Kamila segir erfitt að áætla magnið af mat sem fer í gegnum frískápinn en hann er fylltur og tæmdur daglega. 2.500 meðlimir eru í hópnum Frískápur Reykjavík en þar lætur fólk vita þegar það hefur fyllt á skápinn.

Frískápar eru algengir erlendis en þessi hér er fyrsti sinnar tegundar hér á landi. Kamila segir að það standi til að koma fleiri frískápum fyrir á landinu.

„Það eru áætlanir um að gera þetta á Selfossi og Akureyri, við erum í sambandi við nokkrar manneskjur en bíðum bara eftir stað.“

Hún segir að matarsóun sé gríðarlegt vandamál hér á landi.

Skjáskot. Reykjavik.is

„Ég heimsótti vinkonu mína á Akureyri fyrir um þrem árum. Í þessari ferð sagði hún mér hve miklum mat væri hent og ég fór næstum að gráta. Ég fékk tár í augun og fannst ég verða að gera eitthvað í þessu. Nú er ísskápurinn kominn og þetta fer vaxandi og við getum gert miklu meira saman.“

- Auglýsing -

Flestir þekkja heimilistækið í fréttinni undir nafninu ísskápur en þessi tiltekni ísskápur heitir frískápur og það er ástæða fyrir því.

Jú, það er vegna þess að inni í ísskápnum er iðulega frír matur. Ísskápurinn er hlut af alþjóðlegri hreyfingu þar sem markmiðið er að draga út matarsóun og byggja upp sterkara samfélag í kringum það að deila umframmat í gegnum frískápa.

Vinirnir Kamila Walijewska og Marco Pizzolato settu upp ísskáp í þessum tilgangi við Bergþórugötu 20 og hafa viðtökurnar verið framar vonum.

- Auglýsing -

„Hver sem er getur komið. Hver sem er getur komið með mat sem hann ætlar kannski ekki að nota. Maturinn er heima og það er hægt að koma með hann hingað og ef fólk sér eitthvað gott getur það tekið það heim, þetta eru svona skipti,“ sagði Kamila Walijewska sem stendur að baki verkefninu.

 

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -