Arna Magnea Danks
„Við erum bara fólk eins og annað fólk“
Arna Magnea Danks
Fólk

Björk Guð­munds­dóttir er ólétt

Peningar

Samherji hyggst reka vinnu­búðir með gist­ingu

Fólk

Selja fal­lega sveita­sælu í Ölfusinu með risa­stórri lóð

Minning

Svanur Jóhann­es­son er lát­inn

Innlent

Eft­ir­lýstur í átta mán­uði á Íslandi en finnst ekki

Innlent

Kona á fimm­tugs­aldri ákærð fyrir að aug­lýsa vændi á Akureyri

Innlent

MAST varar við neyslu á skinku frá Stjörnu­grís

Pólitík

Sakar Trygg­inga­stofnun um að veita rangar upp­lýs­ingar og sýna for­dóma

Heimur

Óvenju­leg inn­rás mar­íu­bjalla vekur óhug

Pólitík

Rússar undr­andi á Þorgerði Katrínu

Kona dæmd í fangelsi fyrir mansal: Setti stjúpbörn sín í nauðungarvinnu og stal launum þeirra

Kona dæmd í fangelsi fyrir mansal: Setti stjúpbörn sín í nauðungarvinnu og stal launum þeirra

Hér­aðs­dómur Reykja­ness hefur dæmt konu í fjög­urra ára fang­elsi fyrir man­sal, brot í nánu sam­bandi og pen­inga­þvætti. Konan neyddi þrjú stjúp­börn sín til nauð­ung­ar­vinnu sam­kvæmt dómnum og ber að greiða hverju þeirra bætur. Konan var einnig ákærð fyrir brot gegn fjórða stjúp­barn­inu en var kröfum þess barns vísað frá dómi. Vísir greinir fyrst frá mál­inu.

Samkvæmt dómnum voru brotin framin yfir um tveggja og hálfs árs tíma­bil, frá apríl 2018 til nóv­em­ber 2020.

Konan útveg­aði stjúp­börnum sínum, sem eru erlendir rík­is­borg­arar, dval­ar­leyfi hér á landi og flutti þau til lands­ins. Hún útveg­aði þeim síðan störf hjá fyr­ir­tæki þar sem hún starf­aði bæði sem verk­stjóri og stýrði dag­legum rekstri.

Konan lét þrjú stjúp­barna sinna vinna hjá fyr­ir­tæk­inu í allt að þrettán klukku­stundir á dag, sex til sjö daga vik­unnar. Fjórða barnið lét hún vinna í allt að tvær klukku­stundir á dag, þrjá daga vik­unnar.

Þau laun sem börnin fengu greidd fyrir störf sín stal konan síðan af þeim. Það gerði hún ýmist með því að milli­færa pen­ing­inn af reikn­ingum þeirra yfir á sína eigin reikn­inga og greiðslu­kort, eða með því að láta börnin taka pen­inga út úr hrað­bönkum. Um er að ræða rúm­lega 16 millj­ónir króna.

Konan var einnig sak­felld fyrir brot í nánu sam­bandi og brot á barna­vernd­ar­lögum vegna fram­komu sinnar við stjúp­börnin. Hún er sögð hafa ítrekað gert lítið úr börn­unum á sér­lega sárs­auka­fullan og meið­andi hátt með því að kalla þau aum­ingja, öskra á þau bæði á vinnu­staðnum og á heim­il­inu, banna þeim að stunda tóm­stundir og eyða tíma með vinum sínum. Konan er jafn­framt sögð hafa meinað tveimur barn­anna að fara í fram­halds­skóla að grunn­skóla­námi þeirra loknu. Hún hafi einnig hótað því að senda börnin til heima­lands­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Er Sabrina Pasterski næsti Einstein?

Eftir að hafa smíðað flugvél á unglingsárum rannsakar Sabrina Pasterski nú svarthol, þyngdarafl og eðli rúmtímans.
Innlent

Maður játar að hafa brotið rúður í nærri þrjá­tíu bílum á Sel­tjarn­ar­nesi

Innlent

Erfða­rann­sóknir á Íslend­ingum lyk­il­at­riði í þróun nýs megr­un­ar­lyfs

Innlent

Eyjan sem átti að hverfa árið 2020 stendur enn upp úr sjó

Pólitík

„Það var stór­kost­legt að vakna í morgun“

Innlent

Innlent

Umboðs­maður Alþingis krefur Útlend­inga­stofnun svara

Fjölmargar kvartanir vegna tafa á afgreiðslu umsókna hafa borist umboðsmanni, sem vill skýringar á biðtíma.
Innlent

Drífa segir frjálst val í vændi oft vera blekk­ingu

Innlent

Lög­reglan gerði mis­tök en íslenska ríkið sleppur við bætur

Innlent

Nú er hægt að spjalla við lög­regl­una á net­inu

Innlent

Egill segir íslenska fjöl­miðla fasta í einni mestu fréttagúrku síð­ari ára

Innlent

Fíkni­efna­bóndi í Reykja­vík dæmdur í fang­elsi