Fimmtudagur 25. apríl, 2024
6.1 C
Reykjavik

Jonni: „Þetta snýst ekki um peninga heldur að búa til minningar og ég er moldríkur af þeim“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Körfuboltaþjálfarinn Jón Halldór Eðvaldsson – Jonni – hefur verið lengi að í sportinu og tekið að sér ýmis verkefni; hann var dómari, hann er þjálfari og þá er hann einn af sérfræðingunum í þættinum Domino´s Körfuboltakvöld.

Jonni er með skemmtilegri mönnum og Mannlíf lagði fyrir hann nokkrar spurningar.

Jonni er skemmtilegur og uppátækjasamur maður, eins og sést

Jonni byrjaði „að þjálfa 1997, ef ég man þetta rétt, en þá var ég búinn að vera að dæma í einhver ár og hafði mjög gaman af, og eðlilega hef ég mjög mikinn áhuga á körfubolta,“ segir hann og bætir við:

„Ég hafði mikinn áhuga á að taka að mér þjálfun; man ekki hver það var – mögulega var það Kristinn Óskarsson – sem fékk mig í að þjálfa yngri flokk, en ég þarf eiginlega að þakka viðkomandi innilega fyrir. Ég tók síðan við kvennaliði Keflavíkur 2006, og það var fyrsta þjálfarastarfið mitt í meistaraflokki.“

Jonni hefur unnið fjöldann allan af titlum sem körfuboltaþjálfari í gegnum tíðina og það tengja hann flestir við körfuna, en færri vita að hann var góður markvörður í knattspyrnu.

En gat hann eitthvað í körfu?

- Auglýsing -

„Ég var ekki neitt merkilegur í körfu en ég var geggjaður í marki! Ég á reyndar einhverja Íslands- og bikarmeistaratitla í yngri flokkum – hugsa að það hafi ekki verið mér að þakka samt – en ég hætti í körfu fimmtán ára gamall til að elta knattspyrnuferilinn; það var ekki rétt „move“ hjá mér,“ segir Jonni og hlær:

„En ég elskaði að spila fótbolta og kynntist mikið af toppfólki þar.“

Jonni, hvernig heldur þú þér á tánum sem þjálfari?

- Auglýsing -

„Ég veit ekki hvað sé best að segja varðandi það; ég hugsa að mikill áhugi á körfubolta sé það sem haldi mér á tánum. Svo hef ég bara svo rosalega gaman af því að vera inni í íþróttasal. Ég hef ekki farið í neitt nám varðandi þjálfun; hef setið eitthvað af námskeiðum en mest er þetta grúsk. En námið mitt um þessar mundir felst í því að hlusta á mesta körfuboltagúru sem ég hef hitt, og hann heitir Hörður Axel Vilhjálmsson – fyrir miðaldra karlmann er það mjög gefandi og skemmtilegt.“

Spurður um hvað það sé sem geri þjálfun svo heillandi er Jonni ekki seinn til svars:

„Þetta snýst ekki um peninga – þetta sýnst um að búa til minningar og ég er orðinn moldríkur af þeim, og þær verða aldrei teknar af mér. En þetta er auðvitað fyrst og fremst áhugamál; alveg eins og fólk spilar golf og vill helst vera á golfvellinum alla daga og spila þá vil ég vera í íþróttahúsinu sex daga vikunnar.“

Hvaða þjálfunaraðferðum eða taktík beitir þú og hvernig myndirðu lýsa þér sem þjálfara?

„Taktík breytist eftir því hvernig lið þú ert að þjálfa. Ég hef aldrei verið fastur í að gera hlutina eins; ég reyni að aðlaga mig að þeim verkefnum sem ég er með hverju sinni og vinn mig þaðan. Ég er liðsþjálfari fyrst og fremst.“

Hvernig skyldi nú Jonna lítast á kvennalandsliðið í dag? Hann er ekki margorður um það:

„Það hefur mátt muna sinn fífil fegurri.“

Þá að Domino´s Körfuboltakvöldi, en þar er Jonni einn af sérfræðingunum.

Körfuboltakvöld er einn besti og merkilegasti þáttur allra tíma í íslensku sjónvarpi og hefur lyft körfunni hér upp á hærra plan.

Hann segir mikla gleði fylgja þættinum:

„Það að hafa fengið að taka þátt í þessu ævintýri sem þessi þáttur er, er mjög skemmtilegt. Þessi þáttur hefur einfaldlega lyft körfuboltanum hér á Íslandi upp á annað plan.

Núna er allt í einu fullt af fólki sem veit lítið um körfu farið að fylgjast með og hafa gaman af.

Takmarkinu var þar með náð, en betur má ef duga skal, og við höldum ótrauð áfram að búa til frábært sjónvarp fyrir Íslendinga,“ segir Jonni sem er þó ekki einungis mikill áhugamaður um körfubolta þótt hann sé í forgrunni:

Jonni gerði Keflavík að Íslandsmeisturum árið 2011, og hefur unnið til fjölda annarra titla

„Ég elska að elda og ég er mikill áhugamaður um ferðalög; ferðast mikið og hef rosalega gaman af því að fara á fótboltaleiki á Englandi. En fyrst og fremst er ég áhugasamur um lífið og að lifa því.“

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -