Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Kristín Birna er látin

Kristín Birna er látin
|

Fyrr­ver­andi Íslands­meist­ari í akst­urs­í­þróttum, Kristín Birna Garð­ars­dóttir, lést á Landa­koti 1. jan­úar síð­ast­lið­inn, af völdum Alzheimer, 62 ára að aldri.

Kristín fædd­ist 25. ágúst 1962 en for­eldrar hennar eru Anna María Samsted og Garðar Guð­munds­son. Systur hennar eru þær Kamilla Björk, Linda og Lilja.

Það var á Sel­tjarn­ar­nes­inu sem Kristín ólst upp en seinna bjó hún í Reykja­vík en síð­ustu árin bjó hún í Mos­fells­dal með fjöl­skyldu sinni.

Starfaði hún meðal ann­ars í versl­un­inni Virkni í Ármúla, Litaveri og seinna sem skrif­stofu­stjóri á fast­eigna­söl­unum Remax Bæ, Remax Lind og Fast­eigna­söl­unni Bæ í Kópavogi.

Með sanni má segja að Kristín sé goð­sögn í akst­urs­í­þróttum en aðeins 16 ára eign­að­ist hún mótókross­hjól og varð fyrsta konan á Íslandi til að keppa í mótókrossi. Árin 1979 til 1986 keppti hún í Íslands­meist­ara­keppnum í íþrótt­inni en hætti þegar hún eign­að­ist fyrsta barnið sitt.

Sumarið 1986 gerði hún sér þó lítið fyrir og tók þátt í rallýkrossi á bíl sem hún hafði fengið lán­aðan hjá vini sínum og varð þannig fyrsta konan til að keppa í íþrótt­inni. Árið 1990 eign­að­ist Kristín sinn eigin bíl og varð Íslands­meist­ari í rallakstri þrjú ár í röð. Í eitt skipti keppti hún ólétt af öðru barni sínu en hún var þá komin fjóra mán­uði á leið.

Þá tók hún einnig þátt í tor­færu­keppni sum­arið 1990 á sér­út­búnum bíl og varð þannig fyrsta konan til þess að keppa í þeirri íþrótt. Hafnaði hún í 7. sæti. Aukreitis keppti Kristín í sparakstri, braut­ar­keppnum, kvartmílu, öku­leikni og svo fram­vegis. Í sjö ár sat hún í stjórn Vél­hjóla­í­þrótta­klúbbs­ins.

Ekki hafði Kristín aðeins óþreyt­andi áhuga á akstri á bílum og vél­hjólum heldur einnig á flugi. Hún fór í flug­nám árið 1977 ásamt manni sínum og tók einka­flug­manns­próf árið 1980. Kristín átti hlut í tveimur flug­vélum.

Lætur Kristín eftir sig maka sinn, Guðberg Guð­bergs­son en þau kynnt­ust árið 1977 og bjuggu saman í 47 ár en þau áttu sam­eig­in­legt áhuga­mál í flug­inu og akst­urs­í­þrótt­unum. Börn þeirra eru Anna Björk og Viktor og eru barna­börnin fjögur.

Útför Krist­ín­ar Birnu fer fram mánu­dag­inn 13. janú­ar kl. 13 frá Grafar­vogs­kirkju.

Mbl.is sagði frá and­lát­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Fólk

Selja fal­lega sveita­sælu í Ölfusinu með risa­stórri lóð

Húsið var reist árið 2014
Innlent

Fór í búð í Graf­ar­vogi en end­aði í fanga­geymslu

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Myndir
Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum