Fimmtudagur 25. apríl, 2024
8.1 C
Reykjavik

Kvikmynd Clooney fékk hæstu endurgreiðsluna

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Kvikmyndin The Midnight Sky sem George Clooney leikstýrir og leikur aðalhlutverkið í fékk hæstu endurgreiðslu úr ríkissjóði það sem af er þessu ári, alls 313 milljónir króna. RÚV greinir frá.

Myndin, sem var að hluta til tekin upp við Höfn í Hornafirði á síðasta ári, byggir á skáldsögunni Good Morning, Midnight eftir Lily Brooks-Dalton og fjallar um vísindamann sem er staddur á heimskautasvæðinu og reynir að ná sambandi við geimfara í geimskipinu Aether eftir heimsendi. Miðað við 25 prósent endurgreiðslu nam framleiðslukostnaður myndarinnar hér á landi um 1,3 milljörðum.

Kvikmyndin The Tomorrow War, sem þeir Chris Pratt og J.K. Simmons eru stjörnurnar í, fékk rúmar 200 milljónir í endurgreiðslu og sjónvarpsþættirnir Foundation fengu 164 milljónir, en þeir eru gerðir fyrir streymisveitu Apple.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -