Miðvikudagur 27. mars, 2024
-0.2 C
Reykjavik

Lækna-Tómas æfur vegna undanþágugigga Willums fyrir jólin: „Man ekki annað eins á mínum 30 árum“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Hjartaskurðlæknirinn Tómas Guðbjartsson er æfur út í Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra. Vegna „undanþágugigga“ ráðherrans hefur læknirinn nú unnið 10 daga sleitulaust á spítalanum þar sem starfsfólk sligast undan álagi yfir jólin.

Þetta kemur fram í færslu Tómasar á Facebook þar sem hann segist illa skilja málflutnings fólks í þá veru að ómikrón-afbrigðist sé bara saklaust kvef og veirupest. Með færslunni birtist hann myndir af einu hágæslurými Landspítalans sem notað er sem geymsla.

„Samt liggur fárveikt fólk á gjörgæslunni hjá okkur og enn fleiri á smitsjúkdómadeild – þar sem þeim bara fjölgar, og það með stæl eftir undanþágugigg ráðherra á Þorláksmessu. Verra er að starfsfólk spítalans er að veikjast í hrönnum og mörg teymi og deildir að sligast undir álagi – álagi sem fyrir jól var ærið,“ segir Tómast og heldur áfram:

„Sjálfur hef ég verið í vinnunni sleitulaust í 10 daga og man ekki annað eins á mínum 30 árum sem læknir. Áðan kom síðan upp hópsmit á hjartadeild, sem er stærsta legudeild sjúkrahússins. Sjúklingar þeirrar deildar mega illa við Covid-sýkingu ofan á alvarlegan hjartasjúkdóm – og því skiljanlegt að skynsamur sóttvarnalæknir reyni að bremsa faraldurinn með viðurkenndum aðferðum.

Þetta virðast sumir þingmenn og ráðherrar bara alls ekki skilja – og eru sífellt að vísa í frelsi einstaklingins og að stóri bróðir sé að taka yfir sjoppuna. Síðan hvenær getur frelsi einstaklings gengið út yfir frelsi annarra? Það eru jú mannréttindi að sýkjast ekki af sjúkdómi sem getur verið banvænn – sérstaklega ef maður er veikur fyrir.

Og af hverju eru allir í löndunum í kringum okkur að fara leið sóttvarna og verja heilbrigðiskerfi sín? Eru engin mannréttindi þar á bæ – og þeir bara hreinir vitleysingar? Eða eru erlend þjóðfélög ekki svo heppin eins og við að eiga varaþingmenn og fyrrverandi héraðdómara, Arnar Þór Jónsson, sem sífellt beitir fyrir sig bulli og fer síðan í mál við fólk sem hefur heilbrigðari skynsemi en hann sjálfur. Allt til að skora pólitískar keilur að hætti Trump.

- Auglýsing -

Varasamur varaþingmaður það – sem greinilega hefur aðra hagsmuni í heiðri en heildarinnar.

ps. læt fylgja með brakandi ferskar myndir af hágæslurými gjörgæslunnar við Hringbraut, stofu 1. Hún er enn nýtt sem geymsla – enda þótt ráðherra og almenningur haldi annað. Ástæðan er einföld – það vantar starfsfólk. Lausnin á því er ekki fleiri skýrslur, erlendir ráðgjafar eða fundir, heldur betri kjör sem lokka aftur á sjúkrahúsið gjörgæsluhjúkrunarfræðinga sem horfið hafa til annarra starfa. Stundum eru lausnir óþægilega einfaldar – og það beint af býli.“

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -