Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Lækna-Tómas hraunar yfir Möggu Frikka: „Fallhlífastökk án fallhlífar er dauðans alvara“

Tómas Guðbjartsson læknir.
Tómas Guð­bjarts­son læknir.

Hjarta­skurð­læknirinn Tómas Guðbjartsson á varla orð yfir vitleysunni í Margréti Friðriks­dóttur, baráttu­konu gegn sótt­varnar­aðgerðum og bólu­setningum hér á landi. Hann segir hana á leið í einhvers konar harakiri-leiðangur sem stofni ekki aðeins hennar lífi í hættu heldur margra annarra.

Skoðun sinni lýsir Tómas í nýlegri færslu á Facebook en tilefni skrifanna er sú staðreynd að Margrét hefur skráð sig í alþjóð­lega samanburðar­rannsókn þar sem reynt verður að finna út hvor hópurinn er betur varður gegn kórónu­veirunni, bólu­settir eða óbólusettir. Varla þarf að taka það fram að Margrét tilheyrir síðari samanburðar­hópnum enda hefur hún lengi talað gegn bólu­setningum hér á landi gegn veirunni skæðu.

Til að berjast gegn sótt­varnar­aðgerðum og bólu­setningunum stofnaði Margrét vefsvæðið frettin.is sem á dögunum hlaut skráningu sem fjöl­miðill. Í færslu á Facebook tilkynnti hún um rann­sóknina sem hún tekur nú þátt í og samkvæmt henni má hún alls ekki láta bólusetja sig gegn Covid-19.

Tómasi líst afar illa á þetta nýjasta verkefni Margrétar, eins og sjá má á færslu læknisins:

„Fallhlífa­stökk án fall­hlífar er dauðans alvara.

Það er ótrúlegt að sjá ungt fólk taka þátt í bull­rannsókn þar sem bera á saman veikindi bólu­settra og óbólusettra við Covid-19. Niður­staðan er álíka augljós og ef borið væri saman hvort fall­hlífar fyrir­byggi dauða eða ekki þegar stokkið er út úr flugvél í mikilli hæð. Reyndar hefur aldrei verið gerð slembuð samanburðar­rannsókn á notagildi fallhlífa til að fyrir­byggja dauða við fallhlífa­stökk – enda erfitt að finna fólk í samanburðarhóp.

Sumir óbólusettir virðast hins vegar lemja hausnum við steininn og bjóða sig fram í einhvers konar harakiri; tilraun þar sem þeir stofna ekki aðeins eigin heilsu í voða – heldur einnig velferð annarra. Ólíkt fall­hlífum, liggja hins vegar fyrir mjög vandaðar rann­sóknir á jákvæðum áhrifum bólu­setninga við Covid-19. Því miður hlakka ég ekki til að sjá niður­stöðuna úr þessu fallhlífausa fallhlífa­stökki.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim