Þriðjudagur 16. apríl, 2024
-0.8 C
Reykjavik

Landsmóti hestamanna aflýst

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Landsmóti hestamanna, sem átti að fram 6. – 12. júli á Hellu, hefur verið aflýst. Næsta Landsmót verður því sumarið 2022 á Hellu.

Landsmótið fer fram annað hvert ár á móti Heimsmeistaramóti íslenska hestsins, ekki var því hægt að halda Landsmótið að ári, því þá fer HM fram í Danmörku,

Landsmótið verður því næst sumarið 2022 á Hellu, eins og til stóð í sumar. Undir venjulegum kringumstæðum hefði það átt að fara fram í Kópavogi, en verður þar sumarið 2024.

Þeir sem hafa keypt miða á mótið í sumar geta valið um þrjár leiðir:
a) Endurgreiðslu.
b) Að láta miðann gilda á mótið 2022.
c) Að láta andvirði miðans renna til styrktar mótsins.

Yfirlýsing Landsmóts hestamanna:

„Sú ákvörðun hefur verið tekin af Landssambandi hestamannafélaga, Félagi hrossabænda og Rangárbökkum, þjóðaleikvangi íslenska hestsins ehf. að fresta Landsmóti hestamanna sem fara átti fram á Hellu dagana 6. – 11. júlí. Í samráði við Hestamannafélagið Sprett mun mótið fara fram á Hellu   sumarið 2022. Af þeim sökum verður Landsmót hestamanna haldið í Kópavogi árið 2024 í stað 2022 eins og samningar gerðu ráð fyrir.

- Auglýsing -

Þeim aðilum sem sótt höfðu um að halda landsmótið 2024 hefur verið gefin kostur á að færa þær umsóknir yfir á landsmótið árið 2026.

Sú heilsufarsvá sem stafar af COVID-19 faraldrinum á heimsvísu er ekki liðin hjá og mun hafa ýmsar takmarkanir í för með sér á næstu mánuðum. Í máli sóttvarnalæknis, Þórólfs Guðnasonar hefur komið fram að fjöldasamkomur skuli takmarkaðar við 2000 manns a.m.k. út ágústmánuð.  Landsmót hestamanna er því of fjölmenn samkoma til að hægt sé að halda hana í sumar.

Þeir sem keypt hafa miða á viðburðinn munu fá tölvupóst frá tix miðasölu ásamt því að allar upplýsingar eru aðgengilegar á www.landsmot.is. Miðahafar geta valið um þrennt a) fá endurgreitt b) láta miðann gilda fram til 2022 eða c) styrkja viðburðinn. Allar bókanir á tjaldsvæðum verða endurgreiddar. Fyrirspurnir varðandi viðburðinn skal senda á [email protected] en varðandi miðasölu á [email protected].

- Auglýsing -

Öll él styttir upp um síðir. Málsaðilar senda hestamönnum baráttukveðjur og hvetja til þess að allir fari að útgefnum reglum og tilmælum Almannavarna ríkislögreglustjóra.“

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -