Fimmtudagur 25. apríl, 2024
5.1 C
Reykjavik

Landsréttur snýr úrskurði við: Karlmaður handtekinn

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Landsréttur hefur snúið við úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur frá því síðasta föstudag og verður karlmanni um tvítugt því gert að sæta áframhaldandi gæsluvarðhaldi til 22. nóvember.

 

Maðurinn var handtekinn á vettvangi miðsvæðis í Reykjavík um þar síðustu helgi í þágu rannsóknar Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á alvarlegri líkamsárás og í kjölfarið úrskurðaður í sex daga gæsluvarðhald á grundvelli rannsóknarhagsmuna. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lagði síðan fram kröfu í héraðsdómi um áframhaldandi gæsluvarðhald yfir manninum á grundvelli almannahagsmuna, en henni var hafnað. Þeim úrskurði hefur nú verið snúið við í Landsrétti eins og áður sagði.

Maðurinn hefur verið handtekinn og færður í gæsluvarðhald.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -