Föstudagur 29. mars, 2024
-2.2 C
Reykjavik

Leita eftir skoðunum barna og ungmenna vegna kórónuveirunnar

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

UNICEF á Íslandi býður börnum og ungmennum að taka þátt í nýrri spurningalistakönnun þar sem þeim gefst kostur á að svara spurningum um kórónaveiruna, líðan sína og skoðanir. Kemur þetta fram í tilkynningu frá UNICEF.

Börn eiga rétt á því að á þau sé hlustað. Það á sérstaklega við á krísutímum eins og nú, þegar börn takast við nýjan veruleika í kórónaveirufaraldrinum. Það er mikilvægt að við spyrjum börn hvaða áhrif breytingar af hans völdum hafa haft á þau, því það hjálpar okkur sem foreldrum að skilja þarfir barnanna okkar og hjálpar okkur jafnframt sem samfélag að mæta þeim þörfum betur.

Könnunin byggir á verkefni barnasálfræðinga frá Noregi og Bretlandi og er unnin í samstarfi við landsnefndir UNICEF í Noregi og á Íslandi. Svörin verða notuð til að vekja athygli á skoðunum barna og hafa áhrif á hvernig við sem samfélag tökumst á við afleiðingar COVID-19 heimsfaraldursins.

Til að taka þátt í könnuninni þurfa yngri börn aðstoð foreldris eða forsjáraðila en UNICEF vill einnig heyra frá unglingum sem ættu að geta leyst spurningakönnunina án aðstoðar. Það þarf bara að leggja könnunina fyrir þau. Öll svör eru ópersónugreinanleg en mikilvægt að bæði barn og foreldri/forsjáraðili séu samþykk því að taka þátt í könnuninni. Hér gefst foreldrum tækifæri til að ræða áhrif kórónaveirunnar við börnin sín.

Könnunin leiðir foreldra í gegnum 16 spurningar um líf og líðan barnsins og geta foreldrar jafnframt nýtt sér stuðningsefni UNICEF um hvernig hægt sé að ræða kórónaveiruna við börn. Könnunin styrkir þannig rödd barna á þeirra eigin heimili og sameiginlega munu svörin varpa ljósi á líðan og skoðanir barna á Íslandi.

Könnunin er aðgengileg hér.

- Auglýsing -

 

 

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -