Föstudagur 29. mars, 2024
-0.2 C
Reykjavik

Leita leiða til að styrkja fjárhag félagsins: „Vitum að á einhverjum tímapunkti mun flug komast aftur í eðlilegt horf“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Flugáætlun Icelandair nemur nú minna en 10% af þeirri áætlun sem gefin hafði verið út fyrir þetta tímabil ársins og mikil óvissa ríkir um framhaldið vegna útbreiðslu COVID-19. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá félaginu.

„Enn ríkir mikil óvissa um hvenær ferðatakmörkunum verði aflétt og eftirspurn eftir flugi og ferðalögum muni aukast á ný og gera stjórnendur Icelandair Group ráð fyrir því að flugáætlun félagsins muni dragast saman um að minnsta kosti 25% yfir sumartímann,“ segir meðal annars í tilkynningunni.

Icelandair hefur gripið til ýmissa aðgerða til þess að verja lausafjárstöðu sína á undanförnum vikum en í tilkynningu félagsins segir að ljóst sé að lausafjárstaða félagsins muni skerðast ef miðað er við lágmarkstekjuflæði hjá félaginu í apríl og maí.

Ráðgjöf frá Kviku, Íslandsbanka og Landsbankanum

Félagið hefur því ráðið Kviku banka, Íslandsbanka og Landsbankann sem ráðgjafa til að hefja skoðun á mögulegum leiðum til að styrkja enn frekar fjárhag félagsins. Stjórnendur Icelandair Group munu einnig vinna náið með íslenskum stjórnvöldum í þessu ferli segir í tilkynningunni.

„Markmiðið er að styrkja samkeppnishæfni félagsins til framtíðar með því að stuðla að sterkri fjárhagsstöðu og lægri einingakostnaði hjá félaginu þegar kemur að því að sækja fram þegar sú ógn sem nú stafar af COVID-19 faraldrinum er liðin hjá. Þetta mun tryggja að félagið komist sterkt í gegnum þessa krefjandi tíma, lágmarka áhrif á íslenska ferðaþjónustu og efnahag eins og mögulegt er, og gera félagið betur í stakk búið til að grípa þau framtíðartækifæri sem munu gefast.“

- Auglýsing -

Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair Group, segir öll flugfélög heims standa frammi fyrir sama krefjandi verkefninu.

„Öll flugfélög heims standa nú frammi fyrir því krefjandi verkefni að styrkja rekstrargrundvöll sinn til framtíðar. Við vitum að á einhverjum tímapunkti mun flug komast aftur í eðlilegt horf og því viljum við vera vel í stakk búin til að sækja fram og nýta þau tækifæri sem þá verða fyrir hendi. Til að ná þeirri stöðu er nauðsynlegt að gera viðeigandi breytingar á kostnaðaruppbyggingu félagsins, styrkja fjárhagsstöðu þess og leita allra leiða til að styrkja samkeppnishæfi þess til frambúðar,“ er haft eftir Boga.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -