Föstudagur 13. september, 2024
9.8 C
Reykjavik

Lilja hitti meðlimi Pussy Riot á æfingu: „Það var áhrifamikið að hitta þessar hugrökku konur“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Lilja Dögg Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra, hitti meðlimi hljómsveitarinnar Pussy Riot á æfingu sveitarinnar í Reykjavík. Hljómsveitin undirbýr tónleikaröð sína um Evrópu hér á landi og hefur verið við æfingar í Þjóðleikhúsinu. Listamaðurinn Ragnar Kjartansson hefur verið þeim innan handar hér á landi.

„Það var áhrifamikið að hitta þessar hugrökku konur,“ segir Lilja. „Ég ræddi meðal annars við þær um bókina Rússland Pútíns, eftir blaðakonuna Anna Politkovskaja, bók sem hafði mikil áhrif á mig þegar ég las hana. Við ræddum einnig um stöðuna í Úkraínu, en þær sögðu mér að það væri forgangsmál hjá þeim að styðja við íbúa Úkraínu og að hugur þeirra, okkar og heimsbyggðarinnar, væri hjá þeim.“

Þá kom fram í máli þeirra að líkur séu á að allt að fjórar milljónir Rússa hafi flúið Rússland á undanförnum mánuðum af ótta við allsherjar herkvaðningu.

Hljómsveitin Pussy Riot var stofnuð í Moskvu árið 2011 og er feminískt pönksveit. Þær stefna á að halda tónleika á Íslandi í haust og hvatti ráðherra þær til þess. Þær hafa í gegnum list sína verið með gjörninga og mótmæli, hampað femínískum boðskap en hafa jafnframt þurft að sitja í fangelsi í Rússlandi fyrir pólitískar skoðanir sínar og aðgerðir. Árið 2012 hlutu þær friðarverðlaun John Lennon og Yoko Ono, en verðlaunin voru þá veitt við athöfn í Viðey þegar kveikt var á friðarsúlunni.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -