Miðvikudagur 27. mars, 2024
2.8 C
Reykjavik

Lögreglan leitar að tvítugum manni – Fundu bíl hans yfirgefinn í Þykkvabæjarfjöru

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Lögreglan á Suðurlandi leitar nú að ríflega tvítugum karlmanni í nágrenni við Þykkvabæjarfjöru. Þar fannst bíll hans í gærkvöldi yfirgefinn. Mikill kuldi er á svæðinu en þrátt fyrir það segir lögreglan að aðstæður séu góður hvað leit varðar.

Tilkynning Lögreglunar á Suðurlandi

Lögreglan á Suðurlandi hóf um kl. 17:00 í gær eftirgrenslan eftir rúmlega tvítugum karlmanni að beiðni aðstandenda hans í Árnessýslu.   Björgunarsveitir voru síðan kallaðar út til aðstoðar við leit um kl. 19:20 og um kl. 22:00 fundu björgunarsveitarmenn bifreið mannsins yfirgefna niður undir sjó í Þykkvabæjarfjöru.

Leitað var með drónum, gangandi og með sporhundum nokkuð stórt svæði í kring um bílinn og svæðið milli Þjórsár og Hólsár inn í landið og fjöruleit beggja vegna við það svæði.  Þá aðstoðaði þyrla Landhelgisgæslu við leitina en varð frá að hverfa vegna bilunar áður en leit lauk en henni var hætt um kl. 02:00 í nótt.

Leit hófst á ný í birtingu í morgun og stefnt er að því að leita fjörur frá Þorlákshöfn austur eftir Suðurströndinni a.m.k. að ósum Markafljóts en einnig verður svæðið milli Þjórsár og Hólsár upp að bæjum í Þykkvabæ leitað sérstaklega.   Aðstæður til leitar eru að því leiti góðar að jörð er frosin þannig að vart markar í eftir tæki leitarmanna og því hægt að sinna leitinni á fjórhjólum,  bílum eða buggy bílum.   Þá hafa stór svæði verið leituð og verða í dag með drónum björgunarsveitanna.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -