- Auglýsing -
Lögreglan á Austurlandi brýnir fyrir fólki lokunum á vegum þar eystra. Lokað hefur verið fyrir þjóðveginn frá Fáskrúðsfirði að Kirkjubæjarklaustri. Öxi er lokuð og verið er að loka Fagradal og Breiðdalsheiði
Háflóð verður í kvöld á milli klukkan 11 og 12 og eru smábátaeigendur hvattir til að huga að þeim en bætt hefur vel í vind.
Björgunarsveitir eru í viðbragðsstöðu og eru byrjaðir að sinna útköllum.
„Aðgerðastjórn þakkar þau góðu viðbrögð sem hún hefur fengið við tilmælum um að tryggja lausamuni og vera ekki á ferðinni meðan veðrið gengur yfir.“