- Auglýsing -
Mathöllin Vera opnar í dag, 5. ágúst, í Grósku hugmyndarhúsi. Staðarhaldarar lofa banastuði og hlakka til að taka á móti gestum. Eigendur mathallarinnar eru Björn Bragi Arnarsson og Hafsteinn Júlíusson. Þeir félagar eru ekki nýir í rekstri mathalla en áður unnu þeir saman að mathöllinni Borg29 í Borgartúni.
Mathöllin verður opin til klukkan 11 í kvöld og mun DJ Young Nazareth þeyta skífum fyrir gesti.
Í VERU eru átta veitingastaðir. Pünk Fried Chicken sem hefur starfað í Gróðurhúsinu í Hveragerði, pizzastaðurinn Natalía úr Borg29 og vínbarinn og kaffihúsið, Mikki Refur, af Hverfisgötu. Hinir fimm staðirnir eru nýir en þar er um að ræða Caliente mexíkóskan stað, Bang Bang sem sérhæfir sig í asískum mat, súpustaðinn Næru, morgunverðarstaðinn Stund og loks Furu sem er nýr staður í eigu verðlaunakokksins Denis Grbic.