Fimmtudagur 25. apríl, 2024
6.1 C
Reykjavik

„Meikar ekkert sens og er ekki fræðilegur möguleiki að allar þessar konur séu að ljúga upp á Jón“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Margrét Hugrún Gústavsdóttir leikkona dáist að hugrekki allra þeirra sem stíga fram og segja frá því kynbundna ofbeldi sem þau hafa orðið fyrir. Hún segir það „augljóslega ekki fræðilegur möguleiki að allar þessar konur séu að ljúga upp á Jón“ Baldvin Hannibalsson, fyrrum ráðherra og sendiherra, sem sakaður hefur verið um slíkt ofbeldi í garð margra kvenna.

Margrét Hugrún Gústavsdóttir.

Jóns bíður nú eftir að mál sem höfðað var gegn honum verði tekið fyrir hjá Landsrétti. Nú síðast vildi Ingibjörg Sólrún Gísladóttir var trúa því að enn væru að koma fram frásagnir tengdar honum. Hugrún er ánægð með Ingibjörgu:

„Ég er ánægð með hana. Það er bókstaflega absúrd hvað margir eiga enn bágt með að tala hreint út þegar kemur að ofbeldi og ofbeldismönnum. Það ávinnst nákvæmlega ekki neitt með þvi að þegja yfir því þegar einstaklingar í yfirburðastöðu misnota vald sitt gegn þeim sem eru þeim háðir með einhverjum hætti. Aldur, veikindi, starf, þjóðerni eða annað. Við búum svo sannarlega ekki til betri heim með því að kóa með vondum mönnum. Ég vil að fleiri sýni hugrekki. Taki skýra afstöðu. Það má allskonar en það má bara alls ekki níðast á minni máttar. Hvorki í stríði, kynferðis, einkamálum né öðrum málum,“ segir hún á Facebook og bætir við:

„Konum (og fólki almennt) finnst mjög erfitt að auðmýkja sig með því að segja frá því að þær hafi verið beittar ofbeldi eða valdníðslu og því er augljóslega ekki fræðilegur möguleiki að allar þessar konur séu að ljúga upp á Jón. Það bara meikar ekkert sens vegna þess að fæstar þora að segja frá. Og það er áframhaldandi ofbeldi gegn þessum hugrökku konum að mæra manninn og hygla eftir allt sem hann hefur gert og endalausar sannanir eru fyrir. Ekki gera það.“

„Nei, hann er ekki í stuði til þess núna. Okkur líður ekki vel, eins og þú getur ímyndað þér,“ sagði Bryndís Schram, eiginkona Jóns Baldvins, þegar Mannlíf leitaði viðbragða við nýlegri umfjöllun um meint samband hans við 15 ára stúlku í Hagaskóla, þegar hann var þar sem kennari vorið 1970.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -