Miðvikudagur 24. apríl, 2024
7.1 C
Reykjavik

Menningarnótt verður að 10 menningarnóttum vegna COVID-19

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Menningarnótt verður með breyttu sniði í ár vegna COVID-19 kórónuveirunnar og í stað eins dags verður hátíðinni dreift yfir tíu daga frá 13. – 23. ágúst. Er þetta til þess að stefna ekki of miklum mannfjölda saman í samræmi við tilmæli almannavarna vegna COVID-19 eins og fram kemur á vef Reykjavíkurborgar.

 

Borgarbúar geta því notið hátíðarinnar dag eftir dag, nótt eftir nótt.

Reykjavíkurborg auglýstir  eftir frumlegum hugmyndum til að fylla inn í nýstárlegt viðburðalandslag Menningarnætur 2020. Veittir verða styrkir á bilinu 100.000-500.000 krónur. Listafólk, íbúar, rekstraraðilar, félagasamtök og allir áhugasamir geta sótt um styrki. Allt er þetta gert til að lífga upp á miðborgina í nafni menningarnætur, þessari þátttökuhátíð sem borgarbúar skapa og upplifa saman.

Hægt er að sækja um í Menningarnæturpottinn til 3. júlí.

Menningarnæturpotturinn er samstarfsverkefni Reykjavíkurborgar og Landsbankans sem verið hefur máttarstólpi hátíðarinnar frá upphafi.

Í ár verður tækifæri til að gleðjast saman, nótt eftir nótt því borgin mun lifna við í samvinnu við listafólk og hönnuði, plötusnúða og tónlistarfólk, leikhúsfólk og sirkuslistamenn og rithöfunda svo ekki sé minnst á gesti og gangandi.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -