Föstudagur 29. mars, 2024
-2.2 C
Reykjavik

Metaðsókn í Landbúnaðarháskóla Íslands: Mest aukning í nám í landslagsarkítektúr

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Metaðsókn er í Landbúnaðarháskóla Íslands bæði í háskólanám og starfsmenntanám skólans. Aðsóknin í grunnám (BS) við skólann jókst um 51,1% á milli ára. Aukningin er hlutfallslega langmest í BS-nám í landslagsarkitektúr þar nemur aukningin 240% á milli ára, fjölgun umsókna í garðyrkjunám á Reykjum nam 45% og umsóknum í búvísindanám fjölgaði um 40%. Kemur þetta fram í tilkynningu frá LBHÍ.

Við skólann er einnig boðið upp á framhaldsnám til meistara- og doktorsgráðu. Á meistarastigi er boðið einstaklingsmiðað rannsóknarnám og starfsmiðað meistaranám í skipulagsfræði. Í skipulagsfræði er mikil aukning frá því í fyrra en 18 eru skráðir til náms á fyrsta ári í haust, en til samanburðar voru sjö nemendur árið áður. Nemendum í doktorsnámi hefur fjölgað á undanförnu ári og hafa aldrei verið fleiri en nú. Þá er gaman að nefna að tveir nemendur vörðu doktorsritgerðir sínar nú í júní.

Sjá einnig: „Einstaklingar sem lifa og snúast í skógrækt er jarðbundið og fallegt fólk“

Landbúnaðarháskóli Íslands býr við þá sérstöðu að bjóða bæði upp á háskólanám og starfsmenntanám á framhaldsskólastigi. Aðsókn í starfsmenntanám skólans sló öll fyrri met í vor með samtals 280 umsóknum.

Má þar sérstaklega nefna góða aðsókn í garðyrkjunám á Reykjum þar sem 136 umsóknir bárust og hafa þær aldrei verið jafnmargar í sögu skólans. Flestir sækja um í lífræna ræktun matjurta en þar sóttu 45 nemendur um nám. Aðsókn er einnig góð í ylrækt með 26 umsóknir og 10 í garð- og skógarplöntuframleiðslu.

Á Hvanneyri í Borgarfirði fer starfsmenntanám í búfræði fram og er mjög góð aðsókn þar og komast færri að en vilja. Leitað er leiða til að mæta þessari eftirspurn.

- Auglýsing -

„Það er mikið gleðiefni að sjá hversu mikinn áhuga ungt fólk sýnir námi í Landbúnaðarháskóla Íslands og hversu dreifing umsókna er mikil. Það er gaman að sjá aukinn áhuga á búvísindanámi, en þar hefur orðið aukning um 40% milli ára. Mikilvægt er að fjölga vísindamönnum á breiðu sviði búvísinda, en þar hefur skort á nýliðun á undanförnum árum. Þá er greinilegt af umsóknum til brautar náttúru- og umhverfisfræða að áframhaldandi áhugi er á sjálfbærri þróun og jafnvægi verndunar og nýtingar.

Þá gleður það mig sérstaklega að sjá þá þessa miklu fjölgun umsókna í starfsmenntanámið okkar, bæði á Hvanneyri og á Reykjum. Aldrei hafa fleiri sótt um að komast að í garðyrkjunámi á Reykjum og færri komast að en vilja í búfræði.

Það er því bjart fram undan hjá Landbúnaðarháskóla Íslands og ljóst að öflugt starf, spennandi námsskrár og markvisst kynningarstarf skólans er að skila góðum árangri,“ segir Ragnheiður I. Þórarinsdóttir, rektor Landbúnaðarháskóla Íslands.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -