Miðvikudagur 27. mars, 2024
4.8 C
Reykjavik

Minnist systur sinnar sem dó í harmleiknum á Selfossi: „Ósættanleg tilfinning situr í hjarta okkar“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Konan sem fannst látin í heimahúsi á Selfossi fimmtudaginn 27. apríl hét Sofia Sarmite Kolesnikova og var á 29. aldursári. Valda Nicola, eldri systir Sofiu heitinnar, minnist hennar á Facebook og skrifar færslu um systur sína sem DV birti í gærkvöldi. Þar segir Valda treysta lögreglunni til þess að komast að því hvað gerðist. Hún segir systur sína aldrei hafa drukkið áfengi, reykt eða neitt slíkt en bræður á þrítugsaldri sitja nú í gæsluvarðhaldi vegna málsins. Skrif Völdu um systur sína má lesa hér í heild hér að neðan.

 „Ósættanleg tilfinning situr í hjarta okkar að vita að þú sért farin elsku litla systir mín.
Á fimmtudaginn fáum við þær fréttir að þú sért farin við vitum ekki hvað gerðist en við treystum lögreglunni að finna út úr því.
Ég er þakklát fyrir hverja mínótu með þér elsku litla systir mín og vinkona frá fæðingardegi þínum árið 1994.
Þú varst manneskjan sem þekkti innihaldslýsinguna  í öllu sem þú borðaðir, í öllu snyrtidóti og hverjum safa sem þú drakkst því þú hugsaðir svo mikið um heilbrigðan lífstíl og mataræði.  Það var eins og þú værir að undirbúa þig til að lifa þangað til þú yrðir 200 ára.
Þú ert eina manneskjan sem ég þekki í lífi mínu sem aldrei neytti áfengis, aldrei reykti eða gerði neitt af þessum slæmu hlutum.
Sú sem alltaf vildir hjálpa ef þú gast, ég held ég hafi aldrei heyrt þig öskra af reiði, þú varst alltaf svo ljúf og hjartahlý.
Ég vildi að ég hefði talað meira við þig og ég hlakkaði svo mikið til þegar þú sagðir mér að þú vildir flytja til Selfoss.
Ég hlakkaði til að passa börnin sem þú vildir.
Þú hefur gert kraftaverk á himni síðan þú lést, allt Ísland var að taka mynd af þessu á föstudaginn.
Takk fyrir að setja sæng á mig og takk fyrir lagið sem þú settir á til að láta okkur vita að þú sért hjá Guði núna.
Þér er velkomið að heimsækja okkur eins mikið og þú vilt eins og alltaf.
Ég mun aldrei gleyma öllu sem þú kenndir mér og ég lofa að hafa alltaf sólarvörn á mér.
Í minningu um Sofia Sarmite Kolesnikova.“

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -