Miðvikudagur 27. mars, 2024
4.8 C
Reykjavik

Nokkur góð ráð til að hrósa: „Flest okkar hafa sjötta skilningarvitið“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

„Flott klipping, hún fer þér vel“, „Ræðan sem þú hélst í afmælisveislunni var mjög áhrifamikil“, „Þú ert virkilega góður vinur; ég get ekki sagt þér hversu frábært það var að tala við þig í síðustu viku þegar ég var í uppnámi,“ segir Ingrid Kuhlman, eigandi ráðgjafaþjónustunnar Þekkingarmiðlun í aðsendri grein á Vísi í dag.

„Einlægt hrós lætur okkur líða vel, bæði þegar við veitum það og þiggjum. Þegar við hrósum sýnum við þakklæti, sem er grundvallarþörf mannsins og mikilvægt í öllum samskiptum. Vísindamenn hafa komist að því að sömu hlutar heilans lýsast upp þegar við fáum hrós og þegar við fáum umbun eins og peninga.

Hrós hjálpar okkur að taka eftir og meta það sem er gott. Það styrkir æskilega hegðun. Ef við segjum sem dæmi samstarfsmanni hversu gott það sé að geta leitað til hans um aðstoð og ráð er líklegt að hann verði boðinn og búinn að aðstoða okkur í framtíðinni.

Hvernig getum við orðið betri í að gefa hrós?

Meðfylgjandi eru nokkur góð ráð:

Veittu einlægt hrós

- Auglýsing -

Það gæti virst skaðlaust að segja einhverjum að skórnir hans séu fallegir, jafnvel þó að þér finnist þeir ljótir. En í langflestum tilfellum mun ósvikið hrós hafa mun meiri áhrif. Flest okkar hafa sjötta skilningarvitið þegar einhver segir eitthvað án þess að meina það.

Taktu eftir

Lykillinn að því að gefa hrós og vera góður í því að gefa hrós er að veita fólkinu í kringum sig eftirtekt. Taktu eftir því hvað þér líkar við eða kannt að meta við manneskjuna og nefndu það.

- Auglýsing -

Vertu nákvæmur og útskýrðu hvers vegna þú ert að hrósa

Gott hrós er nákvæmt og sértækt. Að heyra að einhverjum finnist við klár, góð eða falleg er auðvitað gaman að heyra, en slíkt hrós er almennt og getur átt við um marga. Að nefna eitthvað ákveðið sýnir að við veitum eftirtekt. Í stað þess að segja einhverjum að hann sé góður fundarstjóri væri t.d. hægt að segja: „Mig langar að hrósa þér fyrir fundarstjórnina áðan. Ég var ánægður með að þú skulir hafa tekið sorpmálið af dagskrá. Við hefðum aldrei náð að ljúka fundinum á tilsettum tíma þar sem við þurfum góðan tíma til að ræða þetta mál frá öllum hliðum.

Veittu hrós sem oftast

Helst ættum við að gefa (og fá) hrós á hverjum degi, sérstaklega í nánum samböndum. Það er mjög auðvelt að taka hvert öðru sem sjálfsögðum hlut eða gera aðeins að umtalsefni það sem þarfnast lausna. Að taka eftir öllu því góða við maka þinn, börn þín, systkini eða vini er mikilvægt og getur styrkt sambandið. Þegar við venjumst því að gefa oftar hrós munum við líka taka betur eftir því sem vel gengur.

Taktu á móti hrósi með þakklæti

Stundum finnst fólki óþægilegt að fá hrós og sumir tengja hrós við mont. Að kunna að taka hrósi er jafn mikilvægt og að gefa hrós. Þegar við höfnum hrósi eða gerum lítið úr því erum við í raun að segja þeim sem hrósar okkur að hann hafi rangt fyrir sér eða að við viljum ekki fá hrós. Þetta er eins og að neita að þiggja gjöf frá einhverjum. Einfalt „TAKK“ virkar oft best.

Alþjóðlegi hrósdagurinn

Alþjóðlegi hrósdagurinn verður haldinn hátíðlegur í dag, 1. mars. Haldið var fyrst upp á daginn í Hollandi fyr­ir 19 árum en nú er honum fagnað víða um heim, meðal annars hér á landi. Á vefsíðu alþjóðlega hrósdagsins www.worldcomplimentday.com segir að það sé markmið aðstand­enda hans að hann verði „já­kvæðasti dag­ur heims­ins.“ Öll höfum við þörf fyrir að fá hrós. Það er ekkert sem gleður meira, gefur meiri orku og gerir fólk ánægðara en einlægt hrós.“

Höfundur hrinti hrósdeginum á Íslandi af stað árið 2013 og stofnaði Facebook-síðuna Hrós dagsins . Þar setja um 7.000 manns reglulega inn hrós.“

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -