Laugardagur 20. apríl, 2024
8.1 C
Reykjavik

Nú geta velunnarar Ljóssins gefið þýðingarmikla jólagjöf

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Ljósið sendir jákvæð skilaboð til þjóðarinnar og býður landsmönnum að gefa ástvinum þýðingarmikla jólagjöf í formi styrks í fjölskyldustarf miðstöðvarinnar eða í endurhæfingu fyrir ungt fólk.

 

Styrkurinn er fáanlegur á vefsíðu Ljóssins og þar getur hver og einn valið hvort hann vilji styrkja sérstaklega fjölskyldustarf Ljóssins eða starf unga fólksins. Í kjölfarið fær hann sent gjafabréf í tölvupósti sem hægt er að prenta út og lauma í umslag undir jólatréð.

„Í ár ákváðum við að bjóða fólki að gefa vinum og vandamönnum styrk til starfs Ljóssins í jólagjöf. Við fundum hvað margir voru farnir að spyrja hvort það væri hægt að gefa í eitthvað tiltekið starf og ákváðum að bregðast við því. Það er í raun dásamleg hugmynd,“ segir Erna Magnúsdóttir forstöðumaður Ljóssins.

„Þetta leyfir einnig þeim sem lítið hafa á milli handanna en vilja gefa þýðingarmikla gjöf að gera svo því framlagið er frjálst og upphæðin kemur ekki fram á bréfinu sem er sent. Við viljum gera jólin gleðilegri og léttari fyrir fólk og leyfa þeim að færa krabbameinsgreindum jákvæðni, styrk og von. Það eru skilaboðin sem við erum að senda.“

 

Ljósið er endurhæfingar- og stuðningsmiðstöð fyrir þá sem greinst hafa með krabbamein og aðstandendur þeirra.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -