Föstudagur 29. mars, 2024
-3.2 C
Reykjavik

Nýr eigandi opnar Messann í Lækjargötu

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Veitingamaðurinn Tómas Þóroddsson sem á og rekur staðina Kaffi Krús og Vor á Selfossi hefur keypt Messann í Lækjargötu og verða dyr staðarins opnaðar gestum að nýju klukkan 11:30 í dag.

Áfram verður lögð megináhersla á ferskan fisk og upplifunin fyrir gesti sú sama og hún var fyrir lokun enda eru yfirþjónn og kokkur staðarins þeir sömu og áður.

„Það er mikill fengur að þeim enda Messinn þekktur fyrir skotheldan mat og góða þjónustu. Konseptið verður alveg eins en það bætast við nokkrir nýir réttir á seðilinn og það getur nú ekki verið annað en fagnaðarefni fyrir gestina okkar,” segir Tómas.

Girnilegur matur á Messanum

Messinn verður opinn alla daga vikunnar frá klukkan 11:30 – 22:00 og segist Tómas spenntur fyrir því að standa vaktina með sínu fólki.

„Veitingarekstur er mín ástríða og ég er því mjög þakklátur fyrir að geta starfað við það sem gleður mig einna mest. Ég hlakka því til að takast á við verkefnið.”

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -