Auðmanninum Róbert Wessman var kunnugt um aðild Kristjóns Kormáks Guðjónssonar ritstjóra að innbrotinu í höfuðstöðvar Mannlífs. Þetta fullyrðir Kristjón Kormákur í Mannlífi, Róbert var upplýstur um innbrotið að morgni 21. janúar. Í tengslum við tvö símtöl Róberts og Kristjóns voru milljón krónur millifærðar frá lögmanni Róberts til 24 miðla ehf, fyrirtækis Kristjóns Kormáks.
Í Mannlífi er ítarlega farið ofan í atburðarásina þessa janúardaga. Kristjón Kormákur upplýsir í blaðinu hvernig Róbert lofaði miklum fjármunum og beitti stöðugum þrýstingi til að Kristjón og félagar hans útveguðu gögn úr vörslu Mannlífs. Það endaði með þeim ósköpum að brotist var inn í fjölmiðilinn og öllum greinum og fréttum eytt út af vefnum auk þess að tölvur voru teknar.
Róbert hefur ekki viljað kannast við að hafa vitað af innbrotunum. Hann hefur aftur á móti staðfest að Ólafur Kristinsson lögmaður, sem annaðist millifærslur fjármuna til Kristjóns daginn eftir innbrotið og mánuðina fyrir, hafi unnið ýmislegt fyrir sig undanfarin ár.
Mannlíf er ókeypis í Bónus, Hagkaup og á N1.