Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Oddný brotnaði niður á Bessastöðum: „Guðni forseti hjálpaði mér“

Oddný Harðardóttir.
Oddný Harð­ar­dóttir. Mynd: Vilhjálmur Þór Guðmundsson

Margir innan Samfylkingarinnar hafa í dag heiðrað Loga Einarsson, fráfar­andi formann, á samfélags­miðlum. Flestir segja af honum sögu, yfirleitt jákvæða og gamansama. Það á ekki við um Oddnýju Harðar­dóttur, sem var formaður flokksins þegar Logi tók við. Hún hafi algjör­lega brotnað niður á Bessa­stöðum þegar hún sagði af sér formennsku.

Oddný segir á Facebook: „Það var í kosningunum 2016 að Samfylkingin fékk þrjá þingmenn. Reyndar þrjá öfluga lands­byggðar­þingmenn þá Loga Einarsson, Guðjón Brjánsson og mig sjálfa.

Þá hafði ég verið formaður Samfylkingarinnar í tæpa fimm mánuði, sumarið sem við kusum Guðna sem forseta og gerðum það gott í EM í knatt­spyrnu.“

Oddný segist hafa ákveðið að hætta á Bessa­stöðum. „Það er mikilvægt fyrir íslenskt samfélag að raddir jafnaðar­manna heyrist hátt og skýrt á þingi. Ég hefði getað sagt sem svo að ég þyrfti lengri tíma til að byggja flokkinn upp. Hann hafði mælst illa í skoðunar­könnunum áður en ég tók við.

En mér fannst að þessi afgerandi niður­staða kallaði á afgerandi viðbrögð. Og ég ákvað að segja af mér formennskunni á Bessa­stöðum eftir samtal sem allir flokkar áttu þá við forsetann eftir kosningar og tilkynnti að Logi tæki við, en hann var þá vara­formaður,“ segir Oddný.

Þetta voru skiljanlega þung spor. „Þetta var ekki auðvelt og á fundinum með Guðna forseta féllu vissulega tár en hann hjálpaði mér að ná mér nægilega til að fara frá honum til að hitta fjölmiðla sem biðu.

Ég fór með fyrirfram æfða yfir­lýsinguna og ók svo af stað eftir afleggjaranum frá Bessa­stöðum með tárin í augunum. Jafnaði mig aðeins á bensín­stöðinni í Garðabæ þar sem ég beið eftir Eiríki sem var að koma með rútunni frá Keflavík.“

Oddný segist ekki sjá eftir þessu í dag. og þakkar Loga kærlega fyrir. „Ég ákvað að vera áfram á þingi og styðja Loga og Guðjón eins mikið og ég gæti. Og skref fyrir skref fór fylgið upp og fleiri vildu koma með í liðið. Vonandi vegna jafnaðar­stefnunnar fyrst og fremst.

Logi hefur verið góður formaður í rúm fimm ár. Takk fyrir kæri félagi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Desember nálgast óðum
Innlent

Héraðs­dómur synjar foreldrum Sólons um vitna­leiðslu

Innlent

Biðja um svör eftir að hundar urðu kettinum þeirra að bana

Innlent

Fangi kvartaði eftir að sambýlis­konu hans var bannað að heimsækja hann

Pólitík

Stjórn­völd efla eftirlit með drónum og viðbúnað sérsveit­ar­innar

Innlent

Þvingaði fyrr­verandi eiginkonu sína inn í bíl

Vildi hitta nýja kærastann og beitti fyrrverandi ofbeldi

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis

Fáir Íslendingar vilja selja Lands­bankann

Stella segir kven­fyrirlitningu þrífast á netinu í skjóli tjáningar­frelsis

Unnar hótaði mæðginum og fjöl­skyldan fór í felur

„Ég vil ekki að Ísland upplifi bakslag“