1
Innlent

Þekktur íslenskur maður ákærður fyrir þjófnað á plokkfiski

2
Innlent

Ingunn Rut fékk þriggja ára dóm fyrir Reykholtsmálið

3
Fólk

Fallegur og rúmlega aldargamall gimsteinn settur á sölu

4
Heimur

Flugvél Ameliu Earhart mögulega fundin

5
Pólitík

Nanna leggur til nýja leið gegn einmanaleika eldri borgara

6
Innlent

Píanóflutningurinn varð dýrkeyptur fyrir Flutningaþjónustuna

7
Innlent

Sáu mann spreyja yfir Frjáls Palestína listaverkið á Skólavörðustíg

8
Minning

Anna Valdimarsdóttir er fallin frá

9
Fólk

Selja sögufrægt einbýli við Reykjavíkurtjörn

10
Pólitík

„Þjóðin er komin með upp í kok af þessu skattafylliríi“

Til baka

Öllu starfsfólki hjá Janusi endurhæfingu sagt upp: „Tugir ungra fullorðinna eru á biðlista“

Öllu starfsfólki hjá Janusi Endurhæfingu hefur verið sagt upp og verður skellt í lás í sumar samkvæmt yfirlýsingu frá stjórn Janusar.

Janus endurhæfing – Mynd: Ja.is
Janus endurhæfing - Mynd: Ja.is

Öllu starfsfólki hjá Janusi Endurhæfingu hefur verið sagt upp og verður skellt í lás í sumar samkvæmt yfirlýsingu frá stjórn Janusar. Samkvæmt heimasíðu Janusar fer fram læknisfræðileg starfs- og atvinnuendurhæfing hjá þeim og að markmið starfseminnar sé að aðstoða fólk til að komast á vinnumarkaðinn og fyrirbyggja varanlega örorku.

„Það er þyngra en tárum taki að tilkynna að Janus endurhæfing neyðist til að leggja niður þverfaglega læknisfræðilega heildræna geðendurhæfingu þann 1. júní næstkomandi. Úrræðið er sérhæft fyrir ungt fólk, 18 ára og eldra. Nauðsynlegt fjármagn fæst ekki til að veita  endurhæfinguna áfram og af þeim sökum hefur erfið ákvörðun verið tekin. Hópuppsögn, öllu starfsfólki sagt upp,“ en samkvæmt heimsíðu Janusar eru 24 einstaklingar sem missa vinnuna.

Stjórnin segist harma ákvörðun stjórnvalda að hjálpa ekki til með fjármagn því að það sé öllum ljóst að þörfin fyrir sérhæft úrræði, ætlað ungum fullorðnum, sé mikil. Um sé að ræða jaðarsettan og afar viðkvæman hóp.

Góður árangur hefur náðst

„Sérhæfing Janusar endurhæfingar hefur byggst upp á síðastliðnum 25 árum og ómetanleg þekking orðið til. Endurhæfingin er alfarið einstaklingsmiðuð. Hverjum og einum  er mætt þar sem hann er staddur. Í endurhæfingunni er ungt fólk með langa sögu um geðræna erfiðleika. Margir eru með taugaþroskaröskun og oft mikla áfallasögu að baki. Þeim er tryggður aðgangur að geðlækni, sálfræðingum, iðjuþjálfum, félagsráðgjöfum og ýmsum fleiri sérhæfðum fagaðilum undir sama þaki. Yfir 55% þeirra sem hafa útskrifast frá okkur síðastliðin 3 ár hafa náð árangri með því að fara í vinnu, nám eða í virka sannanlega atvinnuleit. Tugir ungra fullorðinna eru á biðlista eftir að komast í endurhæfinguna.“   

Stjórn Janusar endurhæfingar telur ákvörðun ríkisstjórnarinnar og stjórnvalda ganga í berhögg við stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar og að þessi ákvörðun mun leiða til að ómetanleg þekking og endurhæfingargeta fyrir þennan jaðarsetta hóp tapast.

Í tilkynningu frá Heilbrigðisráðuneytinu er greint frá því að þjónusta við þá einstaklinga sem verið hafa í endurhæfingu hjá Janusi samkvæmt samningnum verði áfram tryggð með öðrum leiðum.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Maður eyðilagði yfir 1.200 vörur í matvöruverslun í Umeå
Myndband
Heimur

Maður eyðilagði yfir 1.200 vörur í matvöruverslun í Umeå

Gekk berserksgang þegar hann var beðinn um að hysja upp um sig buxurnar.
101 árs langafi gefur lítið fyrir hefðbundin heilsuráð
Heimur

101 árs langafi gefur lítið fyrir hefðbundin heilsuráð

Að minnsta kosti 35 létust þegar þak grunnskóla hrundi í Pakistan
Heimur

Að minnsta kosti 35 létust þegar þak grunnskóla hrundi í Pakistan

Sigríður segir Þorgerði Katrínu ekki hæfa til að fara með mál Íslands
Pólitík

Sigríður segir Þorgerði Katrínu ekki hæfa til að fara með mál Íslands

Flutti inn tvö kíló af fíkniefni og bar fyrir sig vanþekkingu
Innlent

Flutti inn tvö kíló af fíkniefni og bar fyrir sig vanþekkingu

„Ég mun halda áfram að vinna að þeim málum sem ég hef brunnið fyrir“
Pólitík

„Ég mun halda áfram að vinna að þeim málum sem ég hef brunnið fyrir“

Unnusta RJ setti honum afarkosti stuttu fyrir andlátið
Heimur

Unnusta RJ setti honum afarkosti stuttu fyrir andlátið

Fór á sjúkrahús með krampa og eignaðist óvænt barn
Heimur

Fór á sjúkrahús með krampa og eignaðist óvænt barn

Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Emilssyni
Innlent

Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Emilssyni

Jón Gnarr yfirgefur Viðreisn
Pólitík

Jón Gnarr yfirgefur Viðreisn

Tveir dæmdir í fangelsi í Þýskalandi fyrir að skipuleggja árásir fyrir Íran
Heimur

Tveir dæmdir í fangelsi í Þýskalandi fyrir að skipuleggja árásir fyrir Íran

Illugi fyrirgefur ungum föður sixpensarann
Fólk

Illugi fyrirgefur ungum föður sixpensarann

Rósa segir ríkið seilast í ævistarf fólks eftir dauðann
Pólitík

Rósa segir ríkið seilast í ævistarf fólks eftir dauðann

Innlent

Flutti inn tvö kíló af fíkniefni og bar fyrir sig vanþekkingu
Innlent

Flutti inn tvö kíló af fíkniefni og bar fyrir sig vanþekkingu

Sendingin kom til landsins í mars á síðasta ári
Þjófar, fíkniefni og fárviðri í nótt
Innlent

Þjófar, fíkniefni og fárviðri í nótt

Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Emilssyni
Innlent

Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Emilssyni

Nýtt forstjóraembætti auglýst hjá ríkinu
Innlent

Nýtt forstjóraembætti auglýst hjá ríkinu

Peningar Akureyrings aftur fyrir dóm
Innlent

Peningar Akureyrings aftur fyrir dóm

Lögreglan býður foreldrum aðstoð
Innlent

Lögreglan býður foreldrum aðstoð

Loka auglýsingu