Fimmtudagur 25. apríl, 2024
10.1 C
Reykjavik

Ölvaðir í hraðakstri

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Lögreglan á Suðurnesjum hefur á síðustu dögum kært nítján ökumenn fyrir of hraðan akstur. Sá sem hraðast ók mældist á  143 km hraða þar sem hámarkshraði er 90 km á klukkustund.

Kemur þetta fram í tilkynningu frá lögreglunni.

Einn þessara ökumanna, sem mældist á 115 km hraða var grunaður um ölvunarakstur. Annar sem mældist á 121 km hraða var einnig grunaður um ölvunarakstur og var hann jafnframt með útrunnin ökuréttindi.

Þá voru nokkrir ökumenn teknir úr umferð vegna gruns um að þeir ækju undir áhrifum fíkniefna. Einn þeirra var með meint kannabis í fórum sínum. Annar var ekki með gild ökuréttindi.

 

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -