Föstudagur 19. apríl, 2024
4.1 C
Reykjavik

Ómar segir frá erfiðum veikindum: „Gat ekki staðið kyrr, legið eða setið, sofið eða vakað“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Fjölmiðlamaðurinn með meiru, Ómar Ragnarsson, fjallar um erfitt afbrigði kórónuveirunnar í færslu sem birtist á bloggsíðu hans.

Frásögn Ómars er svipuð og fótboltakappans Lional Messi, sem greindi frá leiðinlegum veikindum sínum á dögunum. Ómar segir lýsingar Messi hljóma kunnulega, en hann lýsir veikindunum á þennan hátt:

„Lýsing Messi á einkennum kórónuveirunnar hljómar kunnuglega í eyrum þess, sem fengið hefur svipaða útgáfu af þessum fjanda í aprílbyrjun.“

Ómar veltir því fyrir sér hvort hægt verði að tala um nýtt afbrigði af veirunni.

„Nú hefur Messi lýst sínu afbrigði þannig, að hugsanlega verður hægt að tala um „Messi-afbrigðið af veirunni.“

Einkennin voru ansi snörp í byrjun með stóru verkjakasti sem þungamiðju, og voru verkirnir það miklir og í öllum líkamshlutum einn daginn, að hvorki var hægt að standa kyrr, liggja eða sitja, sofa eða vaka.

- Auglýsing -

Veiran réðst á lungun og í kjölfar lungnabólgu fylgdu ströng fyrirmæli læknis um að leggja alveg af reglulegt vikulegt kapphlaup upp fjórar hæðir með skeiðklukkumælingu og taka nokkrar vikur í að forðast slíkt.

Þegar blóðeitrun í hæl og ökkla fylgdi ótugtinni var enn meiri ástæða til að fara sér hægt.“

 

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -