Föstudagur 19. apríl, 2024
4.1 C
Reykjavik

Örtröð víða vegna Ferðagjafarinnar í gær: Flestar ávísanir hafa verið notaðar á N1

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Fram kom í hádegisfréttum RÚV í dag að flestir hefðu nýtt Ferðagjöf stjórnvalda á veitingastöðum, eða um helmingur þeirra sem nýttu hana.

Ferðagjöfin rann út á miðnætti og í gærkvöld myndaðist örtröð víða við veitingastaði og bensíndælur.

Á miðvikudaginn, þegar síðustu tölur voru uppfærðar, áttu enn rúm 32 þúsund eftir að leysa út Ferðagjöfina. Þá voru það þessir staðir sem tekið höfðu við hæstu upphæðunum í formi ferðaávísana:

  1. N1 – Þjónustumiðstöð
  2. Olíuverzlun Íslands ehf.
  3. Sky Lagoon ehf.
  4. KFC ehf.
  5. Flugleiðahótel hf. (Icelandair Hotels)
  6. Tix Miðasala ehf.
  7. Flyover Iceland ehf.
  8. Pizza-Pizza ehf.
  9. Hlöllabátar
  10. Icelandair ehf.

Sigmar Vilhjálmsson, eigandi Hlöllabáta, Barion og Minigarðsins, sagði að biðröð hefði myndast alla leið út á götu fyrir utan staði hans í gærkvöld, en alls leystu 2.250 manns út sína ferðaávísun á stöðunum eða á netinu í gær. Sigmar bauð viðskiptavinum að kaupa 9000 króna gjafabréf, 3000 krónur á hvern staðanna þriggja, fyrir 5000 króna Ferðagjöfina. Með því gat fólk fengið gjafabréfið á um það bil 55 prósenta afslætti.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -