Laugardagur 20. apríl, 2024
7.1 C
Reykjavik

Össur rífur Brynjar í sig: „Sjálfstæðisflokkurinn skelfur á beinunum af ótta við Kristrúnu“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

„Úr dómsmálaráðuneytinu er Brynjar Níelsson helsta gjallarhorn og hundablístra skrímsladeildarinnar og greinilegt að andspænis sterkum og óvanalega efnilegum stjórnmálamanni er eina ráð þessa myrkasta afkima flokksins að tala Kristrúnu niður,“ skrifað Össur Skarphéðinsson á Facebook í dag. Í færslu sinni talar hinn gamli Samfylkingaráðherra um hræðslu Sjálfstæðisflokksins við Kristrúnu Frostadóttur.

Í færslunni segir Össur að Brynjari Níelssyni, aðstoðamanni dómsmálaráðherra, haldi að fólk sé „fífl“ en er hann sjálfur á öndverðu meiði hvað það varðar. Sjálfstæðisflokkurinn segir Össu að sé „skíthræddur“ við Kristrúnu en fylgi Samfylkingarinnar hefur hækkað um 18 prósentustig síðan hún tók við formennsku í flokknum.

Færslan er í heild sinni hér:

„Þau eru skíthrædd við Kristrúnu

Er fólk fífl? Brynjar Níelsson virðist þeirrar skoðunar. Eftir að hafa lesið helgarviðtal við Kristrúnu Frostadóttur í Mogganum segist hann efast um að hún njóti alþýðuhylli, sér ekkert nema froðu í viðtalinu og segir að hún hafi engin áherslumál. Hvernig ætlar þá hinn eitursnjalli stjórnmálaskýrandi að útskýra að fylgi flokks okkar Kristrúnar hefur aukist um ríflega 18% eftir að hún tók við formennsku? Gæti það stafað af því að fólki líki einfaldlega við þær áherslur sem hún hefur lagt fram? Kann að vera að Íslendingum þyki hún skeleggur leiðtogi sem sé líklegur til að ná betri árangri fyrir þjóðina en núverandi leiðtogar hennar? Vitaskuld. Fólk er nefnilega ekki fífl. Það sést best á því að fylgi Sjálfstæðisflokksins hefur hrunið síðustu ár af því fólk dæmir hann af verkum sínum. Staðreyndin er sú, að Sjálfstæðisflokkurinn skelfur á beinunum af ótta við Kristrúnu. Úr dómsmálaráðuneytinu er Brynjar Níelsson helsta gjallarhorn og hundablístra skrímsladeildarinnar og greinilegt að andspænis sterkum og óvanalega efnilegum stjórnmálamanni er eina ráð þessa myrkasta afkima flokksins að tala Kristrúnu niður. Línan í umtali og hvíslherferðum á að vera að hún hafi ekkert að segja, enga stefnu og tali tóma froðu. Við, sem höfum glímt við Sjálfstæðisflokkinn, þekkjum þessar aðferðir. En við vitum líka að fólk er ekki fífl.“

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -