Miðvikudagur 27. mars, 2024
-1.2 C
Reykjavik

Óvissustigi lýst yfir vegna landriss við Þorbjörn – Íbúafundur í Grindavík á mánudag

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Ríkislögreglustjóri hefur lýst yfir óvissustigi Almannavarna í samráði við lögreglustjórann á Suðurnesjum vegna vísbendinga um kvikusöfnun vestan við fjallið Þorbjörn á Reykjanesskaga. Kemur þetta fram í tilkynningu frá Veðurstofu Íslands.

Undanfarna daga hefur landris og aukin jarðskjálftavirkni mælst á Reykjanesskaga og telja jarðvísindamenn Veðurstofu Íslands og Jarðvísindastofnunar HÍ mögulegt að um sé að ræða kvikusöfnun vestan við Þorbjörn, þótt ekki sé útilokað að aðrar ástæður geti verið fyrir þessari virkni.  

Samhliða hefur Veðurstofa Íslands fært litakóða fyrir flug á gult. 

Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra, Veðurstofan og þær stofnanir sem málið varða hafa aukið samráð og fylgjast með stöðunni.  

Óvissustigi er lýst yfir þegar grunur vaknar um að eitthvað sé að gerast af náttúru- eða mannavöldum, sem á síðari stigum gæti leitt til þess að heilsu og öryggi fólks, umhverfis eða byggðar sé ógnað. 

Íbúafundur haldinn á morgun

- Auglýsing -

Íbúafundur verður haldinn í íþróttahúsinu Grindavík kl. 16 á morgun, mánudag 27. janúar, þar sem vísindamenn frá Veðurstofunni og Jarðvísindastofnun munu gera grein fyrir stöðunni auk fulltrúa frá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og lögreglustjóranum á Suðurnesjum.  

Lesa má nánar um tilkynninguna og hvaða áhrif landrisið getur haft á veður.is.

Fylgjast má með frekari upplýsingum frá Almannavörnum á Facebook. 

- Auglýsing -

 

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -