Arna Magnea Danks
„Við erum bara fólk eins og annað fólk“
Arna Magnea Danks
Fólk

Björk Guð­munds­dóttir er ólétt

Peningar

Samherji hyggst reka vinnu­búðir með gist­ingu

Fólk

Selja fal­lega sveita­sælu í Ölfusinu með risa­stórri lóð

Minning

Svanur Jóhann­es­son er lát­inn

Innlent

Eft­ir­lýstur í átta mán­uði á Íslandi en finnst ekki

Innlent

Kona á fimm­tugs­aldri ákærð fyrir að aug­lýsa vændi á Akureyri

Innlent

MAST varar við neyslu á skinku frá Stjörnu­grís

Pólitík

Sakar Trygg­inga­stofnun um að veita rangar upp­lýs­ingar og sýna for­dóma

Heimur

Óvenju­leg inn­rás mar­íu­bjalla vekur óhug

Pólitík

Glúmur segir Ólaf Ragnar „mesta vind­hana sem Ísland hefir fætt og klætt“

Páll segir engan fæðast í röngum líkama:„Hlutverkaleikur er barnagaman sem sumir vaxa ekki upp úr’’

Páll segir engan fæðast í röngum líkama:„Hlutverkaleikur er barnagaman sem sumir vaxa ekki upp úr’’
Páll Vil­hjálms­son

„Full­orðið fólk má gera hvað það lystir við lík­ama sinn, tor­tíma honum ef því er að skipta. En það er ábyrgð­ar­hluti af fólki, sem á að heita full­orðið, að telja ung­mennum trú um að hægt sé að fæð­ast í röngum lík­ama,’’ skrifar Páll Vil­hjálms­son, blaða­maður og kenn­ari, í nýrri blogg­færslu sinni. Færslan hefur vakið hörð við­brögð og reiði meðal fólks en þar segir kenn­ar­inn, löngun til þess að vera annað kyn en maður fæð­ist, allt annað en að fæð­ast í röngum lík­ama.

„Til að ein­stak­lingur fæð­ist í röngum lík­ama þarf með­vit­undin að verða óháð lík­am­anum. En með­vit­und utan lík­ama er ekki til. Með­vit­undin gerir fólk lif­andi. Án með­vit­undar er mað­ur­inn sof­andi/með­vit­und­ar­laus eða hrein­lega dauður.

Með­vit­undin skapar upp­lifun. Einhver getur verið tík án þess að vera gelt­andi; annar ljón­styggur en samt ekki fer­fætlingur. Maður getur verið lús­ið­inn en ekki skor­dýr.

Mörgum finnst lík­ami sinn ekki nógu stæltur eða grannur; brjóstin of lítil eða mann­dóm­ur­inn væskils­legur. Óánægja með lík­amann og lík­ams­parta er við­tek­inn þáttur í menn­ing­unni og snar þáttur í efna­hags­kerf­inu. Marg­vís­leg fegrun, húð­flúr, lík­ams­rækt, megrun og lýta­lækn­ingar velta millj­örðum,’’
skrifar kenn­ar­inn. Þá segir hann óaft­ur­kræfar aðgerðir og lyfja­með­ferðir vara fyrir lífs­tíð. „Hlut­verka­leikur er barna­gaman sem sumir vaxa ekki upp úr. Það hafa alltaf verið til kven­legir karlar og karl­mann­legar konur. En hug­mynda­fræðin, blekk­ingin, um að fæð­ast í röngum lík­ama fær sumt ungt fólk til að gang­ast undir óaft­ur­kræfar aðgerðir og lyfja­með­ferð. Löngun er ein í dag en önnur á morgun. Ekki síst hjá ungu fólki. Óaft­ur­kræf inn­grip í lík­amann vara fyrir lífs­tíð. 

Þeir sem telja sjálfum sér trú um að vera í röngum lík­ama eru í reynd að segja með­vit­und­ina og lík­amann sitt­hvað. Ef með­vit­undin er ekki lík­am­leg og nátt­úru­leg hlýtur hún að vera yfir­nátt­úr­leg, guð­leg. En þá færi með­vit­und aldrei í rangan lík­ama. Guð, sam­kvæmt skil­grein­ingu, gerir ekki mis­tök,“ skifar hann að lokum en blogg­færsl­an­una má lesa í heild hér að neðan.

„Ekki hægt að fæð­ast í röngum lík­ama

Staðhæft er að sumir fæð­ist í röngum lík­ama. Að ,,kona“ fæð­ist í lík­ama karls og öfugt; ,,karl“ í kven­lík­ama. En það er ekki hægt. Ástæðan er eft­ir­far­andi.

Við barns­fæð­ingu verður til ein­stak­lingur heill og óskiptur. Með­vit­undin og lík­am­inn eru eitt. Hvernig ein­stak­ling­ur­inn vex og dafnar er háð erfðum ann­ars vegar og hins vegar atlæti. Aðeins and­vana fæddir eru án með­vit­undar. Lifandi fædd börn eru ein óskipt­an­leg heild, lík­ami og með­vit­und. Hvorugt getur án hins verið.  

Ein­stak­ling­ur­inn er annað tveggja karl­kyns eða kven­kyns. Í örfáum til­vikum, vel innan við 1% lif­andi fæddra, eru kynein­kenni óræð. Þau til­vik eru lækn­is­fræði­legt úrlausn­ar­efni.

Til að ein­stak­lingur fæð­ist í röngum lík­ama þarf með­vit­undin að verða óháð lík­am­anum. En með­vit­und utan lík­ama er ekki til. Með­vit­undin gerir fólk lif­andi. Án með­vit­undar er mað­ur­inn sof­andi/með­vit­und­ar­laus eða hrein­lega dauður. 

Með­vit­undin skapar upp­lifun. Einhver getur verið tík án þess að vera gelt­andi; annar ljón­styggur en samt ekki fer­fætlingur. Maður getur verið lús­ið­inn en ekki skor­dýr.

Mörgum finnst lík­ami sinn ekki nógu stæltur eða grannur; brjóstin of lítil eða mann­dóm­ur­inn væskils­legur. Óánægja með lík­amann og lík­ams­parta er við­tek­inn þáttur í menn­ing­unni og snar þáttur í efna­hags­kerf­inu. Marg­vís­leg fegrun, húð­flúr, lík­ams­rækt, megrun og lýta­lækn­ingar velta millj­örðum.

Full­orðið fólk má gera hvað það lystir við lík­ama sinn, tor­tíma honum ef því er að skipta. En það er ábyrgð­ar­hluti af fólki, sem á að heita full­orðið, að telja ung­mennum trú um að hægt sé að fæð­ast í röngum lík­ama.

Löngun til að vera annað kyn en manni var úthlutað við fæð­ingu er allt annað. Drengur getur hagað sér eins og stúlka og stúlka eins og drengur. Hlut­verka­leikur er barna­gaman sem sumir vaxa ekki upp úr. Það hafa alltaf verið til kven­legir karlar og karl­mann­legar konur. En hug­mynda­fræðin, blekk­ingin, um að fæð­ast í röngum lík­ama fær sumt ungt fólk til að gang­ast undir óaft­ur­kræfar aðgerðir og lyfja­með­ferð. Löngun er ein í dag en önnur á morgun. Ekki síst hjá ungu fólki. Óaft­ur­kræf inn­grip í lík­amann vara fyrir lífs­tíð. 

Þeir sem telja sjálfum sér trú um að vera í röngum lík­ama eru í reynd að segja með­vit­und­ina og lík­amann sitt­hvað. Ef með­vit­undin er ekki lík­am­leg og nátt­úru­leg hlýtur hún að vera yfir­nátt­úr­leg, guð­leg. En þá færi með­vit­und aldrei í rangan lík­ama. Guð, sam­kvæmt skil­grein­ingu, gerir ekki mis­tök.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Er Sabrina Pasterski næsti Einstein?

Eftir að hafa smíðað flugvél á unglingsárum rannsakar Sabrina Pasterski nú svarthol, þyngdarafl og eðli rúmtímans.
Innlent

Maður játar að hafa brotið rúður í nærri þrjá­tíu bílum á Sel­tjarn­ar­nesi

Innlent

Erfða­rann­sóknir á Íslend­ingum lyk­il­at­riði í þróun nýs megr­un­ar­lyfs

Innlent

Eyjan sem átti að hverfa árið 2020 stendur enn upp úr sjó

Pólitík

„Það var stór­kost­legt að vakna í morgun“

Innlent

Innlent

Umboðs­maður Alþingis krefur Útlend­inga­stofnun svara

Fjölmargar kvartanir vegna tafa á afgreiðslu umsókna hafa borist umboðsmanni, sem vill skýringar á biðtíma.
Innlent

Drífa segir frjálst val í vændi oft vera blekk­ingu

Innlent

Lög­reglan gerði mis­tök en íslenska ríkið sleppur við bætur

Innlent

Nú er hægt að spjalla við lög­regl­una á net­inu

Innlent

Egill segir íslenska fjöl­miðla fasta í einni mestu fréttagúrku síð­ari ára

Innlent

Fíkni­efna­bóndi í Reykja­vík dæmdur í fang­elsi