Aðalmeðferð í máli Þórðar Snæs Júlíussonar og Arnars Þórs Ingólfssonar gegn Páli Vilhjálmssyni fór fram þann 27.febrúar síðastliðinn. Tilefnið voru ummæli Páls á bloggsíðu sinni þar sem hann sagði Þórð og Arnar eiga aðild að byrlun Páls Steingrímssonar skipstjóra og stuldi á síma hans. Þá var Páli einnig stefnt fyrir það að fullyrða að saksóknari myndi gefa út ákæru á hendur blaðamönnum RSK-miðla.
Mannlífi barst ábending um það að Samherji hyggðist greiða lögmannskostnað Páls Vilhjálmssonar og hafði blaðamaður samband við Pál í morgun. ,,Nei, svarið er nei. Ég hef ennþá ekki borgað kostnaðinn vegna þess að málið var aðeins flutt núna fyrir tveim, þremur dögum,’’ sagði Páll. Aðspurður hvort Samherji muni greiða lögmannskostnaðinn þegar að því kæmi á síðari stigum svaraði hann: „Nei, ég geri ekki ráð fyrir því. Ég mun náttúrulega þurfa að standa skil af þessu sjálfur.“