Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Heimur

Kærastan fann dagbækurnar og sleit sambandinu við David Walliams

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sambands­afmæli með kærustunni

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Prestur rifjar upp óþægilega reynslu úr æsku

Fólk

Fjórum árum eftir að heilinn hótaði uppsögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Lögregla fjarlægði mótmælanda eftir að hafa ruglast á áletrun á bol hans

Heimur

Raun­veruleika­stjarnan Sheila Mangubat látin 35 ára að aldri

Páll segir vinstrimenn vilja fylla landið af útlendingum – „Fyrirlíta íslenska alþýðu“

Páll Vilhjálmsson kennari og bloggari.
Páll Vil­hjálms­son kenn­ari og blogg­ari.

Páll Vilhjálmsson, blaða­maður og kennari, segir í nýrri blogg­færslu sinni að útlendingar sameini íslenska vinstri­menn. „Vinstri­menn nenna ekki að bíða eftir næstu móðu­harðindum til að komast yfir lands­stjórnina. Þrauta­ráðið er að fylla landið útlendingum. Skipta um þjóð í landinu,“ skrifar Páll og segir þjóðina afþakka forræði vinstri­manna. Mannlíf fjallaði í gær um gagnrýni séra Davíðs Þórs á Facebook-síðu sinni en kallaði hann ríkis­stjórnina fasista­stjórn. Páll segir prestinn tóna boðskapinn með færslu sinni. „Vinstri­presturinn Davíð Þór, spaugari á yngri árum og ritstjóri klámrits, tónar boðskapinn: þeir sem efast um ágæti yfirtölu útlendinga á Fróni fari beina leið til helvítis,“ skrifar Páll en færsluna endar hann á orðinu: Amen.
Blogg­færslu Páls má lesa í heild hér að neðan.

„Útlendingar sameina íslenska vinstri­menn. Vinstri­menn fyrirlíta íslenska alþýðu, menningu hennar og lífs­viðhorf. Mottóið er ,,allt er betra en íslenskt.“

Andúðin liggur í erfða­menginu. Þjóðin afþakkar forræði vinstri­manna og hefur allaf gert. Flokkar þeirra skipta um nafn og kennitölu, ýmist fjölgar þeim eða fækkar, en alltaf segir almenningur nei, takk.

Aðeins einu sinni í Íslands­sögunni fá vinstri­menn meirihluta, þegar þjóðin var hugstola eftir svokallað hrun. Á valdatíð Jóhönnu­stjórnarinnar lék allt á reiði­skjálfi. Stjórnar­skráin var í uppnámi, full­veldinu var nærri fargað í þágu útlendinga í Brussel og fjármála­kerfið var afhent útlendingum á silfur­fati.

Vinstri­menn nenna ekki að bíða eftir næstu móðu­harðindum til að komast yfir lands­stjórnina. Þrauta­ráðið er að fylla landið útlendingum. Skipta um þjóð í landinu.

Vinstri­presturinn Davíð Þór, spaugari á yngri árum og ritstjóri klámrits, tónar boðskapinn: þeir sem efast um ágæti yfirtölu útlendinga á Fróni fari beina leið til helvítis.

Kjöftugum ratast þar óviljandi satt orð í munn. Vinstri­mönnum er helvíti hugstæðara en himnaríki. Gúlagið fremur en grænir hagar.

Amen.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Gögnin eru hluti af 43 skjölum sem voru birt nýlega. Þar er einnig fjallað um óútskýrðar ratsjármælingar frá árinu 2023.
Menning

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt

Pólitík

Kristrún segir hallalaus fjárlög sleggjuna sem þurfi til að ná vöxtum niður

Heimur

Samsæris­kenningar spretta upp eftir undarlegt augnablik á blaðamanna­fundi

Innlent

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi

Innlent

Innkalla vinsælt jólasmáköku­deig vegna aðskotahluts

Neytendur eru beðnir um að farga vörunni eða skila henni.

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Hrafn­hljóð flýgur inn á manna­nafnaskrá

Sverrir spyr hvað heilli karla við ofbeldið í Grand Theft Auto

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra