Þriðjudagur 23. apríl, 2024
4.1 C
Reykjavik

Pirraður golfari hringdi á lögreglu vegna konu sem fékk sér göngutúr á vellinum

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Lögreglu barst tilkynning um grunsamlegar mannaferðir í hverfi 108 í gær. Þegar lögregla fór á vettvang til þess að svipast um eftir manninum fannst hann hvergi. Í sama hverfi, nokkru síðar, var tilkynnt um skemmdarverk í verslun en ekki kemur fram í dagbók lögreglu hvað gekk á. Í miðbænum var brotist inn á vinnusvæði og vinnutækjum stolið. Málið er í rannsókn.

Í Hafnarfirði hafði vegfarandi samband við lögreglu vegna manns sem var í annarlegu ástandi í verslun. Þegar lögregla kom á vettvang var maðurinn á bak og burt. Í Kópavogi sinnti lögregla svipuðu útkalli en maðurinn,  sem var í annarlegu ástandi, afþakkaði aðstoð lögreglu og sjúkraliðs. Þá hafði golfari samband við lögreglu vegna konu sem gekk um golfvöll og neitaði að yfirgefa völlinn. Uppátækið varð til  þess að lögregla mætti á svæðið en hafði konan þá látið sig hverfa.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -