Föstudagur 19. apríl, 2024
4.1 C
Reykjavik

Er Ármann á útleið?

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Ágreiningur innan raða Sjálfstæðismanna í Kópavogi er sagður geta leitt til þess að Ármann Kr. Ólafsson bæjarstjóri hverfi frá störfum. Fréttablaðið slær upp frétt þess efni í blaðinu í dag og segir rekur ástæðurnar til meints trúnaðarbrests og misjafnar skoðanir á samstarfsflokki í bæjarstjórn.

Í blaðinu er því haldið fram að meintur trúnaðarbrestur hafi átti sér stað fyrir rúmum mánuði síðan þegar bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, Hjördís Ýr Johnsen, á að hafa lekið trúnaðarupplýsingum í Theodóru S. Þorsteinsdóttur, fulltrúa Viðreisnar. Er Theódóra sögð hafa látið Birkir Jón Jónsson, bæjarfulltrúa Framsóknar, í té upplýsingarnar og á Birkir Jón að hafa greint öðrum bæjarfulltrúum frá þeim. Eftir því sem blaðið kemst næst snýst málið um Sorpu þar sem Birkir Jón er stjórnarformaður.

Frekari upplýsingar hefur blaðið ekki um hinn meinta trúnaðarbrest en heldur því fram að hann hafi kynt undir ófrið sem þegar ríki innan bæjarstjórnarinnar og rekja megi til ágreinings sjálfstæðismanna um samstarfsflokk í bæjarstjórn í bæjarstjórnarkosningum fyrir tveimur árum. Ármann bæjarstjóri er þá sagður hafa viljað mynda bæjarstjórn með sameinuðum lista Bjartrar framtíðar og Viðreisnar, og notið stuðnings Hjördísar. Sjálfstæðismennirnir Karen Elísabet Halldórsdóttir, Guðmundur Geirdal og Margrét Friðriksdóttir eru hins vegar sögð hafa staðið í vegi fyrir því að svo yrði, þeim hafi ekki hugnast samstarf við Theódóru og þetta eigi Ármenn erfitt með að fyrirgefa.

Í blaðinu eru týndar til fleiri ástæður fyrir meintum ágreiningi innan raða sjálfstæðismanna, þar á meðal valdabarátta Ármanns og Gunnars Birgissonar fyrrverandi bæjarstjóra. Er flokkurinn þegar sagður farinn að líta í kringum sig eftir nýjum leiðtoga til að stýra flokknum í Kópavogi, þótt kjörtímabilið sé aðeins hálfnað.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -