Þriðjudagur 15. október, 2024
5.7 C
Reykjavik

Quang Le sakar ASÍ um hótanir: „Búið að vera með mig á heil­an­um“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Quang Le er allt annað en sáttur við framkomu ASÍ í sinn garð og heldur því fram í viðtali við mbl.is að hann hafi ekki gert neitt rangt en hann hefur verið ásakaður um mansal, peningaþvætti og flutt fólk til Íslands á fölskum forsendum. Átti Quang Le á sínum tíma NQ fast­eign­ir, Vietnam Mar­ket, Vietnam Restaurant, Vy-þrif, EA 17, Wok on ehf. og Vietnam Cuis­ine ehf. Fjögur þeirra hafa verið tekin til gjaldþrotaskipta.

Ekki hefur verið gefin út ákæra á hendur Quang Le varðandi þessi mál.

Í viðtalinu segir Quang Le að ASÍ hafi oft reynt að snúa starfsfólki hans gegn honum og sagt að það gæti átt kröfu í þrotabú hans ef það myndi votta fyrir um meint brot hans. Jafnframt segir hann í viðtalinu að ASÍ hafi hótað að reka fólk úr landi myndi það ekki hlýða og nafngreinir hann Adam Kára Helgason, starfsmann ASÍ, en hann kom fram í Kveiksþætti sem fjallaði um meint afbrot Quang Le.

Heldur hann því fram að Adam hafi sagt við fólk að hann ætlaði að „taka Quang Le“ niður.

Segir ASÍ hafa hótað starfsfólki

„Þau tóku starfs­fólkið reglu­lega og ræddu eins­lega við það. Sum­ir sögðust hafa verið hrædd­ir en fólkið sagðist ekki þurfa að borga neitt. Ég veit í sjálfu sér ekk­ert hvað starfs­fólkið sagði við ASÍ en ég frétti að það hefði verið að spyrja um þess­ar greiðslur. En ASÍ-fólkið kom á öll­um tím­um dags, til að reyna að klekkja á mér og finna eitt­hvað sem væri að. En allt var í lagi, eins langt og ég vissi,“ sagði Quang Le.

Þá segir hann að Kveikur og ASÍ hafi stýrt aðgerðum lögreglu. „Ég fór beint í ein­angr­un og vissi því ekk­ert um þenn­an þátt. En það sem ég veit er að ASÍ er búið að vera með mig á heil­an­um. ASÍ dró lög­regl­una inn í þetta, ASÍ var búið að ræða við starfs­fólkið margsinn­is. Aldrei var gerð nein at­huga­semd við neitt,“ en Quang Le segir starfsmann ASÍ hafa hótað starfsfólki hans.

„Þetta er mest­megn­is einn og sami maður­inn, hann Adam, sem stóð að þessu. Hann hótaði starfs­fólk­inu þessu.“

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -