Miðvikudagur 6. desember, 2023
0.1 C
Reykjavik

Ragga nagli biður Katrínu Jak að kafa djúpt eftir samkenndinni: „Skammist ykkar!!!“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Ragnhildur Þórðardóttir, klínískur heilsusálfræðingur, segir forsætisráðherra Íslands, Katrínu Jakobsdóttur, formann VG, meðhöndla mannfólk eins og hveitisekki.

Ráðherra sýni af sér fordæmalausa vanvirðingu og harðneskju þegar kemur að brottvísun flóttafólks hér á landi.

Ragnhildur, sem flestir þekkja betur undir nafninu Ragga nagli, er virk að tjá sig á samfélagsmiðlum um málefni líðandi stundar. Að þessu sinni eru það brottvísanir flóttafólks frá Íslandi sem eru henni hugleikið.

Ragga ritar færslu um málið á Facebook:

„Kæra íslenska ríkisstjórn.

Ég skrifa til þín sem íbúi á Norðurbrú í Kaupmannahöfn. Póstnúmer 2200. Þar sem flestir innflytjendur per ferkílómetra búa í Danmörku. Síðustu þrettán ár hef ég búið í fjölmenningarsamfélaginu hér. Í næstu götu er moska. Allt í kringum mig búa múslímskir innflytjendur. Konur með slæður. Menn í kirtlum. Börn með svarta lokka. Hörundsdökkt fólk. Fólk sem kom hingað í leit að betra lífi og skjóli fyrir hörmungum heimalands síns.

- Auglýsing -

Ég ætla að lýsa upplifun minni af þessu fólki sem þú vilt meina aðgöngu inn í hin helgu vé íslenskrar landhelgi. Konan sem hljóp á eftir mér með 10 danskar krónur sem ég hafði gleymt í sjálfsala. Múslimadrengurinn sem dinglaði hjá mér með húfuna sem ég hafði misst úti á götu. Hópurinn af erlendu drengjunum sem hjálpuðu okkur að flytja búslóðina. Grænmetissalinn sem er flóttamaður frá Íran og gefur mér afslátt af því ég brosi svo fallega. Kebabsalinn sem hefur oftar en ekki sagt okkur að koma bara seinna með greiðslu ef kortið hefur verið með vesen, eða vantað örfáar krónum. Slæðuklædda nágrannakona mín sem lánaði okkur þvottavélina sína eitt sinn þegar við fluttum inn í nýja íbúð, og skítugar spjarirnar hrönnuðust upp.

Uppáhalds maturinn minn er tyrkneskur, persneskur, sómalskur, sýrlenskur.

Ef Danmörk hefði sent alla út á guð og gaddinn á níunda áratugnum, væri ekki dúndrandi partý hjá bragðlaukunum hjá okkur í Danaveldi.

- Auglýsing -

Á meðan þú meðhöndlar fatlaðan mann eins og hveitisekk. Með fordæmalausri vanvirðingu og harðneskju, og sendir til að sofa á hörðum trébekk í almenningsgarði í Grikklandi þá hitti ég reglulega íraskan félaga minn í ræktinni í Kaupmannahöfn sem fær enn martraðir tuttugu árum eftir að hafa verið pyntaður af Saddams mönnum.

Á meðan þú lést lögreglu sitja fyrir ungum námsfúsum stúlkum af írönsku bergi svo þær myndu ekki óhreinka gangstéttar Reykjavíkur og taka pláss í framhaldsskóla, þá eru atvinnuauglýsingar sem fylla heilu doðrantana í leit að fólki til starfa.

Þessi þjóð telur aðeins þrjúhundruð og eitthvað þúsund hræður en tekur á móti einni og hálfri miljón ferðamanna á ári. Okkur vantar fleiri vinnandi hendur á dekk. Á meðan þú skellir í lok lok og læs fyrir okkar bágstöddustu bræðrum og systrum í leit að skjóli og vernd fyrir ofsóknum, kúgun, oki og jafnvel dauða, þá er smjattað á snittum í Laugardalnum og þessar aðfarir mærðar í ræðum.

Kæra ríkisstjórn. Það sem mínir hörundsdökku nágrannar hafa kennt mér er vinalegt viðmót á skala sem ég hef aldrei mætt hjá okkur bleiknefjuðu. Ég hef tileinkað mér algjört fordómaleysi þeirra. Að óháð uppruna þá eigum við öll að hjálpa hver öðru og deila gildum okkar sem manneskjur. Ég hef lært að virða aðra útfrá gjörðum og persónuleika, en ekki uppruna, landi eða trú sem þeir kjósa sér.

Ef þú hefðir fengir að ráða í Danmörku á níunda áratugnum hefði ég aldrei kynnst þessu fólki. Það hefði ekki fengið að stíga fæti á danska grund eða verið vísað úr landi, eins og stórhættulegir námsmenn og fatlaðir einstaklingar.

Það er þyngra en tárum taki sú útilokunarstefna í innflytjenda og hælisleitenda málum sem bæði þessi lönd hafa hinsvegar tekið upp. Tvö lönd sem tróna á toppi lífsgæða á allri jarðarkringlunni. Tvö lönd sem skora hæst í lífsgæðum. Tvö lönd sem hafa auðlindir og auðmagn, nægilegt pláss og bolmagn til að taka á móti miklu fleiri bágstöddum sem vita ekki hvort, hvaðan eða hvenær næsta máltíð kemur. Á meðan við forréttindapésarnir kvörtum yfir að uppáhalds hummusinn sé ekki til i matvörubúðinni.

Biðjum til Allah, Guðs, Búdda eða Þórs að þið snúið af villu ykkar vegar og grafið djúpt í iður sálarinnar eftir samkennd, samhyggð og samúð með þeim sem allra minnst mega sín.

Skammist ykkar!!!“

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -