Laugardagur 20. apríl, 2024
9.1 C
Reykjavik

Ragnar Þór heimtar virðingu fyrir verslunarfólk: „Það vill engin sjá barnið sitt niðurbrotið“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -
Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR deilir á facebook síðu sinni því að aftur hafi borið á slæmri framkomu viðskiptavina í garð afgreiðslufólks í verslunum.

Hann segir að: „síðustu misseri hafa verið afgreiðslufólki afar erfið og krefjandi á tímum heimsfaraldursins. Það er í raun óskiljanlegt hversu lítið tillit hefur verið tekið til mikilvægi framlínustarfa eins og í verslun.

Það er varla hægt að gera sér í hugarlund hvernig staðan hefði verið ef almenningur hefði ekki haft nær óheftan aðgang að nauðsynjavöru og annarri þjónustu.
Álag hefur aukist mikið á starfsfólk vegna mikillar aukningar á veltu sem nær svo hámarki í aðdraganda stórhátíða. Ef það er ekki nóg þá þarf verslunarfólk alla jafna að bera grímu og vera í hönskum meira og minna á vinnutíma.
Það er ekki ábætandi að viðskotaillir viðskiptavinir taki togstreytu og pirring dagsins með sér út í búð og láti það bitna á starfsfólki verslanna, sem síst eiga það skilið. Tala nú ekki um gagnvart unga fólkinu okkar sem er að taka sín fyrstu skref á vinnumarkaði, viljum við að upplifun þeirra sé jákvæð og uppbyggileg.
Það vill engin sjá barnið sitt niðurbrotið eftir vinnudag vegna slæmrar framkomu viðskiptavina.
Það eru erfiðir tímar í okkar samfélagi. Tímar óvissu og takmarkana, sóttkvía og einangrunar. Þá er ennþá mikilvægara að standa saman með kærleika, virðingu og þakklæti að vopni.“
Ragnar biður að lokum fólk um að: „sýna framlínufólki í verslun þá virðingu sem það á skilið. Þökkum því fyrir að standa vaktina og gegna þessu mikilvæga og ómissandi hlutverki í okkar samfélagi.“

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -