Fimmtudagur 25. apríl, 2024
8.1 C
Reykjavik

„Rekstrarleg ábyrgð RÚV er ekki til staðar og reksturinn míglekur“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

„Almenningur í landinu er með nauðungaráskrift að Ríkisútvarpinu. Peningarnir fara mikið til í framleiðslu á afþreyingu í beinni samkeppni við fjölmiðla sem ýmist verða að treysta á eigin rekstur eða efnahag eigenda sinna. Rök þeirra sem vilja veg Ríkisútvarpsins sem mestan eru gjarnan þau að stofnunin gegni menningarlegu hlutverki og tryggi almannavarnir. Aðeins lítill hluti framleiðslunnar í sjónvarpshluta RÚV getur flokkast undir boðlega menningu. Þar er sumpart um að ræða jötu fyrir gæðinga stofnunarinnar sem misfara sumir með dagskrárvald,“

segir Reynir Traustason ritstjóri Mannlífs í leiðara sínum, þar sem hann fer yfir stöðu fjölmiðla í dag, sem flestir berjast í bökkum í samkeppni við þann sem er á framfæri ríkisins.

Menningin er á Rás 1, skvaldrið á Rás 2

Reynir segir að það sem flokkast sem menning, sé sinnt af Rás 1 og hafi sú stöð verið öflug á menningarsviðinu. Staðan sé önnur á Rás þar sem „byggir aftur á móti að miklu leyti á innihaldslitlu skvaldri og gjafaleikjum þar sem peningar utan úr bæ ráða stundum umfjöllun,“ að sögn reynist, og því sé enginn munur á þeirri stöð og öðrum útvarpsstöðvum. „Engin ástæða er fyrir ríkið til að halda úti samkeppni við afþreyingarmiðla á frjálsum markaði,“ segir Reynir og bætir við að á þetta hafi verið bent árum saman en ekkert gerst.

Reynir veltir upp þeirri spurningu af hverju ríkið fari ekki í samkeppni í öðrum atvinnugreinum, til dæmis opni ísbúð eða veipsjoppu. Að mati Reynis er svarið augljóst: „Það er ekki við hæfi og reksturinn yrði ekki gæfulegur. Það er raunar hinn almenni vandi RÚV. Rekstrarleg ábyrgð er ekki til staðar og reksturinn míglekur.“

RÚV rekið með tapi fyrir fjármuni almenning

- Auglýsing -

Reynir segir rekstur RÚV lengst hafa verið rekinn með gríðarlegu tapi, en ávallt geta sótt peninga í sjóði almennings, óráðsía sé í rekstri og enginn beri ábyrgð. „Þegar reynt var að koma böndum á stofnunina var gripið til þess að selja lóðir og húsnæði stofnunarinnar. Peningarnir fóru í að greiða niður skuldir og halda áfram að framleiða og sýna dagskrá sem að mestu leyti er í samkeppni við fjölmiðla sem ekki eiga slíkan bakhjarl sem íslenska ríkið er,“ segir Reynir og bætir við að Sjálfstæðisflokkurinn hafi staðið fast um sitt og sína þrátt fyrir að halda á lofti

„því falska flaggi að hann standi með frelsi einstaklingsins og hamli gegn ríkisrekstri. Flokkurinn hefur samt sem áður verið hýsill fyrir Ríkisútvarpið. Flokkurinn hefur verið ráðandi í fyrirbærinu um árabil og gætt þess vandlega að koma sínu fólki að jötunni. Á vakt flokksins hefur stofnunin blásið út í stað þess að vera sett inn í þann ramma sem eðlilegur getur talist. Hræsnin hefur verið nær algjör.“

Lýsir Reynir yfir ánægju sinni með fjölmiðlafrumvarp Lilju Alfreðsdóttur menntamálaráðherra, sem enn hefur ekki verið afgreitt á Alþingi.

- Auglýsing -

„Sjálfstæðisflokkurinn virðist hafa staðið í vegi fyrir framgangi málsins. Boðberar frelsisins stóðu gegn því að frelsið yrði tryggt. Óli Björn Kárason, alþingismaður og formaður fjárlaganefndar, þekkir betur en flestir hversu erfitt er að reka fjölmiðla. Hann hefur skilgreint sig lengst til hægri á litrófi stjórnmálanna og skapað sér þá ímynd að hann sé umfram annað talsmaður einkaframtaks og frelsis. Nú virðist staðan vera sú að hann sé á góðri leið með að stöðva það réttlætismál sem tryggt gat bættar lífslíkur frjálsra fjölmiðla og rétt af samkeppni sem annars er vonlítil. Hann og flokksbræður hans eiga enn tækifæri til að leggjast á árarnar og blása lífi í íslenska fjölmiðla.“

„Þarna eru miklir fjármunir sem eðli málsins samkvæmt ættu fremur að renna til aðila sem bera í raun ábyrgð á rekstri fjölmiðla sinna“

Endar Reynir leiðara sinn á að lausnin felist í að koma skikk á rekstur RÚV, taka eigi hana af auglýsingamarkaði og banna allar kostanir á efni, Rás 2 eigi að fara í hendur einkaaðila og skerpa þarf á menningarlegu hlutverki RÚV:

„Þarna eru miklir fjármunir sem eðli málsins samkvæmt ættu fremur að renna til aðila sem bera í raun ábyrgð á rekstri fjölmiðla sinna,“ segir Reynir og telur brýnt að Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra hjálpi Lilju við að koma frumvarpinu í gegn á þingi.

„Neyðin blasir við. Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra verður að hjálpa menntamálaráðherra sínum við að koma málinu í gegn, með tilstilli stjórnarandstöðunnar ef með þarf. Það þarf víðtæka samstöðu til að tryggja að fjölmiðlun á Íslandi fái þrifist og eigi sér lífsvon. Veiran má ekki verða afsökun fyrir því að gera ekki neitt. Í næstu kosningum kann að verða tímabært að refsa þeim sem veifað hafa röngu flaggi.“

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -