Fimmtudagur 28. mars, 2024
3.8 C
Reykjavik

Ríkissáttasemjari telur „djúpstæðan“ ágreining ekki verða leystan við samningaborðið

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Verkfalli hjúkrunarfræðinga sem átti að hefjast í dag, 22. júní, er afstýrt og miðlunartillaga sem ríkissáttasemjari hefur lagt fram fer nú til kynningar og atkvæðagreiðslu hjá félagsmönnum Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga og fjármála- og efnahagsráðherra.

Aðalsteinn Leifsson ríkissáttasemjari hefur lagt fram miðlunartillögu í deilu Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga (FÍH) og fjármála- og efnahagsráðherra. Fréttatilkynning þess efnis var send út laust fyrir miðnætti í gær.

Þar kemur fram að ríkissáttasemjari telji að ágreiningur FÍH og fjármála- og efnahagsráðherra sé „djúpstæður“ og að deilan verði ekki leyst við samningaborðið.

Það er þess vegna sem ríkissáttasemjari leggur fram miðlunartillögu til lausnar í deilunni.

Í tilkynningu ríkissáttasemjara kemur fram að samkomulag hefur náðst á milli samningsaðila um öll meginatriðið kjarasamnings, þar á meðal um breytt vinnufyrirkomulag dagvinnu og vaktavinnu. Út af standa afmörkum atriðið varðandi laun hjúkrunarfræðinga.

„Miðlunartillagan inniheldur öll þau atriði sem náðst hefur samkomulag um á milli aðila og ágreiningsefni um launalið verður að hluta vísað í sérstakan gerðardóm,“ segir í tilkynningunni.

- Auglýsing -

Miðlunartillagan verður send til félagsmanna FÍH á rafrænu formi. Atkvæðagreiðslan hefst klukkan 12.00 á miðvikudaginn og lýkur klukkan 10.00 á laugardaginn. Félagsmenn í FÍH annars vegar og fjármálaráðherra f.h. ríkissjóðs hins vegar greiða atkvæði um miðlunartillöguna.

Tillagan verður ekki birt öðrum en þeim sem hlut eiga að máli fyrr en atkvæði hafa verið greidd um hana.

Kjarasamning aðila rann út 31. mars 2019. Málinu var vísað til ríkissáttasemjara 21. febrúar 20202. Síðan þá hafa 30 fundir verið haldnir í sáttamálinu.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -