Arna Magnea Danks
„Við erum bara fólk eins og annað fólk“
Arna Magnea Danks
Innlent

Sextán ára stúlka í Reykja­vík tók eigin nauðgun upp á síma

Heimur

Sveit­ar­stjóri rek­inn eftir að upp komst um klám­mynda­gerð

Peningar

Átta félög gjald­þrota og fað­ir­inn gæti fengið atvinnu­rekstr­ar­bann

Innlent

Allir Bónus vanillu­dropar inn­kall­aðir

Innlent

Kona fékk reikn­ing fyrir bíl sem var ekki einu sinni á land­inu

Fólk

Glæsileg fjöl­skyldupara­dís í Graf­ar­vogi leitar nýrra eig­enda

Innlent

Trygg­inga­stofnun svarar fyrir sig eftir harða gagn­rýni á Alþingi

Fólk

Fimm góðar ástæður fyrir því að stunda meira kyn­líf

Innlent

Íris „elti­hrellir“ og fjöl­skylda sögð hafa elt brota­þola heim úr rétt­ar­salnum

Innlent

Spólglaður öku­maður fékk mak­leg mála­gjöld

Ríkisstjórnin hangir á bláþræði: „Það eru ekki allir hamingjusamir í þessu hjónabandi“

Ríkisstjórnin hangir á bláþræði: „Það eru ekki allir hamingjusamir í þessu hjónabandi“
Athugið: Myndin er unnin í tölvu.

Rík­is­stjórn­ar­sam­starf Vinstri grænna og Sjálf­stæð­is­flokks­ins hefur síð­ustu daga beðið hnekki en er lík­legt að stjórnin springi?

Mannlíf ræddi við stjórn­mála­fræð­ing­ana Stefaníu Ósk­ars­dóttur og Grétar Þór Eyþórs­son um stöðu rík­is­stjórn­ar­innar eftir að Svandís Svav­ars­dóttir mat­væla­ráð­herra kom óvænt á hval­veiði­banni á dög­unum sem gildir í allt sumar. Stuttu áður hafði Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra verið harð­orður gagn­vart stöðu hæl­is­leit­enda hér á landi en hann sagði þingið hafa brugð­ist í útlend­inga­málum.

Þetta róast

Stefanía er ekki á því að rík­is­stjórnin sé sprungin.

„Nei, ég tel það ekki. Þó að það hafi verið ein­hverjir skjálftar síð­ustu daga þá held ég að þetta róist nú aftur. En þetta er auð­vitað bara mitt mat, ég get ekk­ert full­yrt um þetta. Það er mín trú að þó að það hafi verið ein­hver skjálfti við ráð­herra­skiptin um dag­inn og Jón Gunn­ars­son verið ósáttur að þurfa að yfir­gefa rík­is­stjórn­ina, þá róist þetta.“

Aðspurð út í ákvörðun Svan­dísar Svav­ars­dóttur að banna hval­veiði tíma­bundið og við­brögð við því sagði Stefanía: „Það eru auð­vitað ein­hverjir í öllum flokkum sem vilja róa á önnur mið en ég held að það sé ekki áhugi fyrir því hjá for­ystu­mönnum rík­is­stjórn­ar­flokk­anna. Ég held að þeir reyni að róa þetta niður.“

Mannlíf spurði Stefaníu hvað þyrfti að gera ef Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn og Framsókn myndu ákveða að ýta Vinsti grænum úr stjórn og fá aðra að borð­inu.

„Það þarf ekk­ert að rjúfa þing eða neitt slíkt. Það hefur svo sem gerst að rík­i­s­tjórn­ar­meiri­hluti hafi breyst á miðju kjör­tíma­bili án þess að það hafi verið kosn­ingar. En ég held að þetta sé afar ólík­legt. Þessi rík­is­stjórn var mörkuð til þess að ná sátt svona heilt yfir. Jón Gunn­ars­son var í við­tali í Dagmálum sem ég hlust­aði á, þar var hann að hvetja til þess að rík­is­stjórn­ar­sam­starf­inu yrði slitið eða að minnsta kosti að fólk myndi hugsa sinn gang í sumar en svo dró hann úr öllu saman og taldi það kannski óábyrgt, sér­stak­lega í ljósi þess að kjara­sam­ingar verða lausir og ýmis­legt í upp­námi. En flokk­arnir eru líka að láta finna fyrir sér og svona reyna að skapa sér stöðu og ná sínum málum fram.“

Að lokum spurði Mannlíf Stefáníu út í grein Krist­jáns Lofts­sonar hval­veiði­mann og Sjálf­stæð­is­mann í Morg­un­blað­inu í dag þar sem hann kallar Svandísi Svav­ars­dóttur „öfga­fullan komm­ún­ista“.

„Kristján Loftsson er auð­vitað bara hags­muna­að­ili og hefur mik­illa hags­muna að gæta og þetta er í sjálfu sér stór­mál fyrir fólk á Akranesi og þá sem stóla á þessar tekjur. En þetta bann kemur með svaka­lega skömmum fyr­ir­vara, þessi ákvörðun. Ein­kenni­lega stuttum fyr­ir­vara. En það eru ekki allir ham­ingju­samir í þessu hjóna­bandi, held ég en mín til­finn­ing er sú að það er búið að ríkja svo mikið traust á milli forristu­manna rík­is­stjórn­ar­flokk­anna, Bjarna, Katrínar, Sigurðar Inga og Lilju, að þau vilja halda þessu áfram. Og ég held að þeir finni út úr þessu. En svo veit maður ekki hvað ger­ist seinna, eftir ein­hverja mán­uði eða ein­hvern tíma, þetta eru alveg tvö ár í við­bót.“

Erfitt að segja til um

Grétar Þór Eyþórs­son stjórn­mála­fræði­pró­fessor við Háskól­ann Á Akureyri var ekki eins viss með líf rík­is­stjórn­ar­innar.

„Sko, það er mjög erfitt að segja til um það en það er margt sem bendir til þess átök séu að magn­ast upp. Manni virð­ist bara sem Svandís sé að koma með ákveðið svar við því sem Bjarni lét heyra frá sér á mánu­dag­inn. Ég les það þannig.“

Aðspurður hvort hann teldi að Svandís hefði haft sam­ráð við Katrínu Jak­obs­dóttur áður en hún tók hina umdeildu ákvörðun sagð­ist Grétar Þór ekki þora að segja til um það. „Hins vegar hefur maður tekið eftir því að það var algjör þögn í gær meðal þing­manna allra flokka þannig að það virð­ist vera sem það hafi verið eitt­hvað þagg­aði niður í kommentum í gær. Svo vitum við ekki hvað verður, hags­muna­að­ilar funda.“

Varðandi gíf­ur­yrta grein Krist­jáns Lofts­sonar í Morg­un­blað­inu í dag sagði Grétar Þór: „Já, já, eðli­lega, það mátti nú alveg búast við því. En auð­vitað virð­ist Svandís vera að rétta kúr­s­inn gagn­vart ansi mörgum í sínum flokki, með þessu útspili. En það er alveg ljóst að það er að koma upp á yfir­borðið mein­ing­ar­munur og stefnu­munur með mun harka­legri hætti en verið hefur.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

2
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Segir fyr­ir­spurnir Guðlaugs Þórs eðli­legar en hafnar sam­an­burð­inum við Pírata

„Gætum við vinsamlegast fengið betri þingmenn takk?“
Innlent

Brennu­varg­arnir í Sorpu komnir aftur á stjá

Innlent

MAST segir að aðgerðir vegna dýra­vel­ferðar megi ekki auka þján­ingar dýra

Fólk

Sjö ein­föld ráð sem gera vetr­ar­hlaupin örugg­ari

Innlent

Einar Logi birtir mynd­band úr inn­broti sínu hjá Stjörnu­grís

Innlent

Innlent

„Það var mjög sárt og nið­ur­lægj­andi að sjá mynd af mér not­aða með þessum hætti“

Saraa Almasri gagnrýnir Morgunblaðið fyrir að birta mynd af henni með frétt sem tengist henni ekki. Hún hefur ekki ákveðið hvort hún leiti réttar síns.
Innlent

Faðir kvart­aði of snemma undan barna­vernd

Innlent

For­eldrar Hönnuh Jane neita að kalla harm­leik­inn á Krýsu­vík­ur­vegi slys

Innlent

Fimm erlendir feður kall­aðir fyrir sýslu­mann vegna barna sinna

Innlent

Akur­eyr­ingur ákærður fyrir hrotta­lega kylfu­árás á sam­býl­is­mann

Innlent

„Morg­un­blaðið heldur ræg­ing­ar­her­ferð sinni gegn múslimum áfram“